12 júní 2026

/

Innviðaráðuneytið

Reglugerð um ökuskírteini: Hverjir þurfa eftir sem áður læknisvottorð?

{image.Description}
Mynd: Golli

Innviðaráðherra gerði nýverið breytingar á reglugerð um ökuskírteini. Ein breytingin var gerð í samvinnu við heilbrigðisráðuneytið. Hún felur í sér að læknisvottorðs verður ekki krafist sjálfkrafa sökum aldurs fyrr en umsækjandi hefur náð 75 ára aldri, í stað 65 ára aldurs áður. 

Aðrar reglur varðandi kröfur um læknisvottorð eru óbreyttar, svo sem vegna skertrar sjónar eða heilsufarsvanda sem getur haft áhrif á aksturshæfni (sjá fullan lista í viðauka III í reglugerð um ökuskírteini):

Hópur fólks hefur aukin ökuréttindi sem fylgdu með almennum ökuréttindum frá fyrri tíð. Þeir sem kjósa að halda þeim við endurnýjun almennra ökuréttinda þurfa eftir sem áður að skila læknisvottorði.
Umsækjendur sem ekki skila læknisvottorði þurfa eftir sem áður að undirrita heilbrigðisyfirlýsingu við umsókn ökuskírteina hjá sýslumönnum.