15 júní 2026

/

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Hallalaus fjárlög 2027 og lækkun skulda

{image.Description}

Alþingi samþykkti í dag þingsályktunartillögu um fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031. Meginmarkmið áætlunarinnar er að stöðva hallarekstur ríkissjóðs árið 2027, lækka skuldahlutfall hins opinbera og skapa stöðugleika í efnahagslífinu. Í áætluninni er haldið aftur af útgjaldavexti og fjármunum forgangsraðað til að styrkja grunninnviði.

Áhersla er lögð á ábyrgan rekstur ríkissjóðs samhliða áframhaldandi uppbyggingu í heilbrigðisþjónustu, samgöngum, menntamálum, málefnum barna og þjónustu við eldra fólk. Áætlunin gerir einnig ráð fyrir auknum fjárfestingum í innviðum, húsnæði, orkukerfum, rannsóknum og nýsköpun.

„Þessi fjármálaáætlun markar nokkur tímamót því í henni er gert ráð fyrir hallalausum fjárlögum í fyrsta sinn í nær áratug. Hún endurspeglar þá stefnu ríkisstjórnarinnar að reka ríkissjóð af aga og festu. Við áætlun að draga úr skuldum og skapa meira svigrúm til fjárfestinga. Það er leiðin að auknum stöðugleika, meiri verðmætasköpun og sterkari stöðu heimila og fyrirtækja,“ segir Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra.

Samþykkt fjármálaáætlunarinnar markar mikilvægan áfanga í stefnumótun hins opinbera. Hún er grunnurinn að fjárlagafrumvarpi ársins 2027 sem lagt verður fram við þingsetningu í haust.