18 júní 2026

/

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Alþingi samþykkir að hækka stofnframlög ríkisins til að byggja hagkvæmar leiguíbúðir

{image.Description}
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra.

Alþingi samþykkti nú rétt í þessu frumvarp Ragnars Þórs Ingólfssonar, félags- og húsnæðismálaráðherra, um hækkun á stofnframlögum ríkisins. Lögin eru hluti af aðgerðum ríkisstjórnarinnar í húsnæðismálum og markmið breytinganna var að bregðast við mikilli eftirspurn eftir leiguíbúðum á viðráðanlegu verði.

Um er að ræða breytingu á lögum um almennar íbúðir. Leiguíbúðir sem stjórnvöld hafa veitt stofnframlög til byggingar eða kaupa á kallast almennar íbúðir. Þær eru ætlaðar leigjendum sem eru undir ákveðnum tekju- og eignamörkum.

Stofnframlög hækka um 5%

Samkvæmt lögunum verður stofnframlag ríkisins ekki lengur bundið við 18% heldur getur það verið allt að 23%. Bilið er þannig 18-23% og ráðherra ákveður hlutfallið nánar í reglugerð. Markmiðið er að auka sveigjanleika kerfisins til að bregðast við sveiflum í byggingar- og fjármögnunarkostnaði.

Lögin öðlast þegar gildi og taka til þeirra stofnframlaga sem veitt hafa verið frá og með nóvember 2025.

Öruggt og viðráðanlegt leiguhúsnæði

Að auki geta viðbótarframlög vegna íbúða ætluðum námsmönnum, öryrkjum og félagsþjónustu sveitarfélaga nú numið allt að 5% til viðbótar við almenn stofnframlög ríkisins.

Þá hefur heimild til að veita slík viðbótarframlög verið útvíkkuð og heimilt verður að veita þau þegar atvinnuhúsnæði er breytt í íbúðarhúsnæði.

„Lögunum er ætlað að styðja sérstaklega við uppbyggingu á hagkvæmu húsnæði fyrir hópa sem standa höllum fæti á húsnæðismarkaði. Með lögunum er stigið nauðsynlegt og mikilvægt skref til að styrkja almenna íbúðakerfið á tímum þar sem fjármögnunarumhverfið er krefjandi en þörfin fyrir öruggt og viðráðanlegt leiguhúsnæði er óumdeilanleg. Fjöldi fólks býr við allt of hátt leiguverð og mikilvægt er að tryggja uppbyggingu fleiri hagkvæmra leiguíbúða,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra.