18 júní 2026
/
Heilbrigðisráðuneytið
Sérnám eflt í heimilislækningum
Heilbrigðisráðuneytið hefur tryggt aukið fjármagn sem gerir kleift að efla sérnám í heimilislækningum. Markvisst hefur verið unnið að því að efla heilsugæsluna síðustu ár og fjölga heimilislæknum. Liður í því hefur verið að fjölga sérnámsstöðum í heimilislækningum og styrkja umgjörð námsins á landsvísu. Árið 2017 voru 38 læknar skráðir í sérnám í heimilislækningum, þeir voru 95 árið 2022 og eru núna 120. Þetta kallar á aukna umsýslu við skipulagningu og stjórnun sérnámsins til að gera það sem best úr garði.
Sérnám í heimilislækningum tekur 5 ár og felur í sér þriggja ára starfsnám í heilsugæslu, tveggja ára starfsnám á sjúkrahúsi, auk fræðilegs hluta. Haldið er utan um skipulag og stjórnun sérnáms í heimilislækningum hjá Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu.