22 júní 2026

/

Heilbrigðisráðuneytið

Breytingar á lögum um sjúkratryggingar 1. ágúst

{image.Description}
Mynd: Heilbrigðisráðuneyti
Alþingishúsið

Samþykkt hefur verið á Alþingi frumvarp heilbrigðisráðherra um ýmsar breytingar á lögum um sjúkratryggingar. Markmið breytinganna er meðal annars að styrkja hlutverk Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) sem kaupanda heilbrigðisþjónustu, bæta eftirlit stofnunarinnar og stuðla að skilvirkari nýtingu fjármuna í heilbrigðiskerfinu. Einnig er vakin athygli á mikilvægum breytingum sem varða sjúkratryggða. 

Breytingar varðandi sjúkratryggingu einstaklinga:

  • Bið einstaklinga eftir sjúkratryggingu sem flytja frá ríkjum utan EES til Íslands verður þrír mánuðir eftir að viðkomandi skráir lögheimili sitt á Íslandi, í stað sex mánuða áður.

  • Frá 1. janúar 2027 verða þeir sem ferðast til landa utan EES ekki tryggðir gagnvart kostnaði sem þeir kunna að verða fyrir vegna veikinda eða slysa. Ferðamönnum er bent á að kanna tryggingarétt sinn hjá tryggingafélögum og athuga kortatryggingar sínar.

Breytingar sem snúa að SÍ:

Skýrt er frekar ákvæði laganna þess efnis að við ákvarðanir sjúkratryggingastofnunarinnar skuli byggt á gagnreyndri þekkingu á sviði heilbrigðisþjónustu og faglegu og hagrænu mati í samræmi við alþjóðlega viðurkenndar aðferðir. Geta stofnunarinnar til að kostnaðargreina heilbrigðisþjónustu er styrkt með ríkari heimildum til aðgangs að upplýsingum um raunkostnað þeirrar þjónustu sem samið er um. Skerpt er á þeirri meginreglu að sjúkratryggingastofnunin taki þátt í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu á grundvelli samninga. Lagabreytingarnar eru m.a. gerðar vegna ábendinga Ríkisendurskoðunar í nýlegri skýrslu um SÍ sem samnings- og eftirlitsaðila. Þar var bent á þörf fyrir aukið gagnsæi, betri upplýsingagjöf, markvissara eftirlit og öflugri stjórntæki við framkvæmd sjúkratrygginga og ráðstöfun opinbers fjár. 

Aðrar helstu breytingar varðandi SÍ:

  • Aukin áhersla er lögð á stafræna þjónustu, rafræn samskipti og örugga meðferð persónuupplýsinga. Greiðsluþátttaka fyrir stafræna heilbrigðisþjónustu skal byggjast á sömu forsendum og önnur heilbrigðisþjónusta.
  • Kveðið er á um aukna samræmingu upplýsinga, skráningu biðlista og miðlun gagna í þágu betri þjónustu og eftirlits.
  • Sjúkratryggingar fá auknar heimildir til gagnaöflunar og eftirlits til að tryggja rétta framkvæmd og greiðslur.

  • Ný ákvæði styrkja heimildir stofnunarinnar til kostnaðargreiningar og eftirlits með samningum og þjónustutengdri fjármögnun.

  • Stjórn SÍ hefur verið lögð niður í samræmi við ákvæði laganna um niðurlagningu stjórnarinnar.