22 júní 2026
/
Dómsmálaráðuneytið
Fyrsta reglugerðin um hagsmunamat barna sem sækja um alþjóðlega vernd
Dómsmálaráðherra undirritaði fyrir helgi reglugerð sem kveður á um að hagsmunir barns skuli alltaf hafðir að leiðarljósi við meðferð umsókna barna um alþjóðlega vernd.
Þetta er fyrsta sérstaka reglugerðin sem sett er um hagsmunamat þeirra barna sem sækja um alþjóðlega vernd. Lög sem tóku gildi í lok mars 2023 kváðu á um að ráðherra setti slíka reglugerð en það hafði ekki verið gert fyrr en nú.
„Það er mikið fagnaðarefni að þessi reglugerð er sett, sú fyrsta sinnar tegundar. Hagsmunir barna og fjölskyldna eiga alltaf að vera leiðarljósið. Með reglugerðinni erum við að tryggja hag þeirra við umsókn um alþjóðlega vernd og málsmeðferð.,“ segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra.
Í reglugerðinni eru líka sett sérstök ákvæði um meðferð mála fylgdarlausra barna til að tryggja að tekið sé fullt tillit til verndarþarfar þeirra og velferðar. Þá er lögð áhersla á vernd fjölskyldueiningar og möguleika til fjölskyldusameiningar.
Við gerð reglugerðarinnar var verklag Útlendingastofnunar og kærunefndar útlendingamála haft til hliðsjónar og óskað eftir athugasemdum frá mennta-og barnamálaráðuneytinu. Tekið var tillit til athugasemda sem bárust frá ráðuneytinu eftir því sem tilefni og þörf var á og efni og orðalag reglugerðarinnar aðlagað í samræmi við þær.