23 júní 2026
/
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Heilbrigðisráðuneytið
Nýtt hjúkrunarheimili með 90 rýmum verður opnað við Keilisbraut í Reykjanesbæ
Nýtt og glæsilegt hjúkrunarheimili fyrir 90 íbúa mun opna við Keilisbraut í Reykjanesbæ. Ráðist verður í gagngerar breytingar og endurbætur á húsnæði við Keilisbraut 753 og 754 og eru aðgerðir vegna uppbyggingarinnar þegar hafnar. Áætlað er að nýja hjúkrunarheimilið verði tekið í notkun vorið 2028.
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) mun annast rekstur hjúkrunarheimilisins en ríkið leigir húsið með leigusamningi til 25 ára af Icelandic Home ehf. Heimilið verður ríflega 6.500 fermetrar og öll herbergin einbýli með baðherbergjum.
Fyrir skemmstu var annað hjúkrunarheimili opnað í Reykjanesbæ og stendur það við Nesvelli. Þegar bæði hjúkrunarheimilin verða komin í gagnið mun hjúkrunarrýmum á Suðurnesjum hafa fjölgað um tæp 80% frá því í janúar sl.
Til viðbótar munu 24 skammtímahjúkrunarrými bætast við í bænum í haust þegar hjúkrunarheimilið Hlévangur opnar á nýjan leik og verða þau starfrækt fram að opnun hjúkrunarheimilisins við Keilisbraut.
Tölvugerð mynd af hjúkrunarheimilinu við Keilisbraut, skjólgóðum garði og útisvæði.
Framfaraskref fyrir eldra fólk á Suðurnesjum
„Við höfum sett málefni eldra fólks í forgang og látum verkin tala. Stjórnvöld eru í stórsókn í uppbyggingu hjúkrunarheimila vítt og breitt um landið og nýja hjúkrunarheimilið við Keilisbraut verður mikilvægt framfaraskref fyrir eldra fólk á Suðurnesjum og fjölskyldur þeirra. Með þessu fjölgar hjúkrunarrýmum verulega á svæðinu og fleiri fá þá þjónustu og það öryggi sem þeir eiga skilið,“ segir Inga Sæland sem fer fyrir uppbyggingu hjúkrunarheimila.
„Stundum gerast góðir hlutir hratt og óhætt að segja það um uppbyggingu hjúkrunarrýma um þessar mundir. Þetta er óendanlega mikilvægt, auðvitað fyrst og fremst gagnvart öldruðu fólki í brýnni þörf fyrir slíka búsetu en einnig fyrir heilbrigðiskerfið í heild, ekki síst Landspítala og bráðamóttökuna þar - og raunar samfélagið allt. Það er grundvallaratriði í heilbrigðismálum að fólk fái þá þjónustu sem það þarfnast á réttum stað og réttum tíma. Svo sannarlega er það mikil áskorun en við höfum ríka ástæðu til að gleðjast yfir þeirri kraftmiklu uppbyggingu hjúkrunarheimila sem við sjáum nú víðsvegar um landið,“ segir Alma D. Möller heilbrigðisráðherra.
„Heilbrigðisstofnun Suðurnesja fagnar mjög þessum áfanga í þjónustu við aldraða á Suðurnesjum. Aðstaðan á Keilisbraut býður upp á marga möguleika til að mynda fallega umgjörð fyrir íbúa heimilisins og móta þar fyrirmyndar samfélag. Með opnun nýja hjúkrunarheimilisins á Keilisbraut skapast einstakt tækifæri til að efla sjúkrahússtarfsemi HSS enn frekar og mun það hafa víðtæk áhrif á heilbrigðisþjónustu til framtíðar,“ segir Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, forstjóri HSS.
Hjúkrunarheimilið við Keilisbraut er hluti af framkvæmdaáætlun um uppbyggingu hjúkrunarheimila fyrir árin 2026-2030 en þar er gert ráð fyrir að ríflega 1.500 hjúkrunarrými verði tekin í notkun á tímabili áætlunarinnar. Í dag eru alls 160 hjúkrunarrými í Reykjanesbæ en með nýja hjúkrunarheimilinu verða þau orðin 250.
Fjölmargir áfangar víðs vegar um landið
Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er áhersla lögð á málefni eldra fólks, þar á meðal fjölgun hjúkrunarrýma.
- Þann 19. mars 2025 var tilkynnt að samkomulag væri í höfn milli ríkis og sveitarfélaga um ábyrgðarskiptingu á uppbyggingu hjúkrunarheimila.
- Í byrjun maí 2025 var fyrsta skóflustungan tekin að nýju hjúkrunarheimili í Ási í Hveragerði.
- Nokkrum dögum síðar mundaði þáverandi félags- og húsnæðismálaráðherra sleggju við Nauthólsveg í Reykjavík en þar verður ráðist í gagngerar endurbætur á húsnæði sem breytt verður í hjúkrunarheimili.
- Undir lok maímánaðar 2025 var ráðherra á Akureyri vegna samkomulags um nýtt hjúkrunarheimili í Þursaholti.
- Sama dag fór ráðherra á Húsavík en þar hefur kyrrstaða nú verið rofin um hjúkrunarheimili sem beðið hefur verið eftir svo árum skiptir.
- Þann 16. júní 2025 var samkomulagið sem náðist milli ríkis og sveitarfélaga í mars fest í lög.
- Þann 1. júlí var nýtt samkomulag undirritað um þreföldun hjúkrunarrýma í Mosfellsbæ.
- Þremur dögum síðar var skóflustunga tekin að stækkun hjúkrunarheimilisins í Sóltúni í Reykjavík.
- Nýtt hjúkrunarheimili í Boðaþingi í Kópavogi var opnað þann 2. september að viðstöddum ráðherrum, bæjarstjóra og fleirum.
- Þann 8. janúar 2026 var viljayfirlýsing undirrituð um uppbyggingu nýs hjúkrunarheimilis í Hafnarfirði.
- Nýtt hjúkrunarheimili var opnað við Nesvelli í Reykjanesbæ þann 15. janúar að viðstöddum ráðherrum, bæjarstjóra og fleirum.
- Í mars síðastliðinn var hjúkrunarheimili opnað í Urðarhvarfi í Kópavogi með 100 rýmum sem notuð eru sem skammtímahjúkrunarrými.
- Þann 4. maí var samkomulag undirritað um nýbyggingu sem mun hýsa nýtt hjúkrunarheimili og heilsugæslustöð í Vík í Mýrdal.
- Um miðjan júní var tilkynnt að tilboð Reita hafi verið valið hagstæðast af Framkvæmdasýslunni-Ríkiseignum vegna uppbyggingar hjúkrunarheimilis fyrir 140 íbúa á Akureyri.
- Á næstunni verða 45 skammtímahjúkrunarrými tekin í notkun á Vífilsstöðum í Garðabæ að loknum endurbótum á húsnæðinu. Þá mun Hlévangur í Reykjanesbæ opna aftur í haust með 24 skammtímahjúkrunarrýmum.
Yfirlitsmynd úr norðri.
Yfirlitsmynd úr suðri.