24 júní 2026
/
Utanríkisráðuneytið
Niðurstöður Hæstaréttar í Vélfagsmálum
Hæstiréttur Íslands hefur í dag staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur nr. E-5581 frá 25. nóvember 2025, máli Vélfags gegn ríkinu, og vísað frá máli Ivan Kaufman gegn ríkinu, nr. E-5581/2025.
Niðurstöður Hæstaréttar eru í samræmi við væntingar utanríkisráðuneytisins og staðfesta að ráðuneytið hefur gætt að vönduðum stjórnsýsluháttum við meðferð málanna í hvívetna. Utanríkisráðuneytið hefur haft að leiðarljósi að gæta almannahagsmuna og standa við alþjóðlegar skuldbindingar Íslands sem tengjast þvingunaraðgerðum sem ætlað er að draga úr svigrúmi Rússlands til að grafa undan stöðugleika í Evrópu. Dómarnir marka tímamót á réttarsviði sem hefur fram til þessa verið lítt prófað fyrir dómstólum og hafa niðurstöðurnar því verulega þýðingu fyrir áframhaldandi framkvæmd laga um alþjóðlegar þvingunaraðgerðir og frystingu fjármuna nr. 68/2023.