24 júní 2026

/

Innviðaráðuneytið

Nýr hringvegur um Hornafjörð: Tólf kílómetra stytting og einbreiðum brúm fækkar um þrjár

{image.Description}
Klippt á borð á nýrri brú yfir Hornafjarðarfljót.

Hringvegurinn styttist um 12 kílómetra í dag þegar nýr vegarkafli um Hornafjörð og nýjar brýr, m.a. yfir Hornafjarðarfljót, voru teknar í notkun. Leiðin til Hafnar frá Reykjavík styttist enn meira eða um 14,6 km. Ragnar Þór Ingólfsson, starfandi innviðaráðherra, tók þátt í vígsluathöfn af þessu tilefni en hann gegnir embættinu fyrir Eyjólf Ármannsson þessa dagana. Með nýjum vegarkafla fækkar einbreiðum brúm á Hringveginum um þrár, úr 29 í 26. 

Framkvæmdin var afar umfangsmikil en lagðir voru tæpir 19 km af nýjum Hringvegi, 9 km af öðrum vegum og byggðar fjórar tvíbreiðar brýr, sem eru samtals 468 m langar. Einnig var gerður áningarstaður og hringtorg við Hafnarveg.

„Með nýjum vegi og fjórum tvíbreiðum brúm – yfir Djúpá, Hornafjarðarfljót, Hoffellsá og Bergá – er stigið stórt skref í átt að auknu umferðaröryggi. Við erum að fækka hættulegum stöðum á leiðinni, jafna aðstæður og gera ferðalög öruggari fyrir alla.“ sagði Ragnar Þór Ingólfsson, starfandi innviðaráðherra í ávarpi sínu og bætti við: „Þessi framkvæmd styrkir tengingar milli þéttbýlisstaða á svæðinu. Fólk getur sótt vinnu og þjónustu með auðveldari hætti, fyrirtæki geta unnið á stærra svæði og ný tækifæri skapast fyrir ferðaþjónustu og aðrar atvinnugreinar.“

„Nýr Hringvegur  um Hornafjörð er fyrsta samvinnuverkefnið af þessari stærð sem ráðist er í á vegum Vegagerðarinnar samkvæmt löggjöf um samgönguframkvæmdir. Veggjöld af umferðinni renna óskipt til nýs innviðafélags í eigu ríkisins og verður þeim varið í að viðhalda þessum tiltekna vegarkafla og fjármagna nýjar framkvæmdir. Með þessu nýja fyrirkomulagi verður hægt að flýta uppbyggingu samgöngumannvirkja um allt land til muna.“ segir Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra.

Fjölmenni var viðstatt opnunarathöfnina sem haldin var á nýrri brú yfir Hornafjarðarfljót. Við það tækifæri klipptu starfandi innviðaráðherra, Bergþóra Þorkelsdóttir forstjóri Vegagerðarinnar og Gauti Árnason formaður bæjarráðs Hornafjarðar á borða að viðstöddu heimafólki. Kvennakór Hornafjarðar söng við vígsluathöfnina en árið 2020 söng kórinn á öllum einbreiðum brúm í Austur-Skaftafellssýslu til að vekja athygli á mikilvægi þess að skipta þeim út fyrir nýjar tvíbreiðar brýr.

Langur aðdragandi

Aðdragandi verksins var langur en fyrstu áætlanir voru lagðar fram árið 2004. Fyrsti áfangi var boðinn út 2017 og fólst í gerð 5 km langrar vegfyllingar en árið 2022 var verkið boðið út að nýju sem samvinnuverkefni með framkvæmd og framkvæmdafjármögnun. Tilboð voru opnuð 17. maí 2022 og samið við Ístak 14. júlí 2022. Framkvæmdir hófust haustið sama ár.

Veggjald frá 1. september

Veggjald verður innheimt til að standa undir fjármögnun framkvæmdarinnar frá og með 1. september nk. Það er gert í samræmi við lög um samvinnuverkefni en þau gera ráð fyrir að veggjöld geti staðið straum af að lágmarki 50% af byggingarkostnaði, viðhaldi, rekstri og þróun samgöngumannvirkisins. Þetta er fyrsta samvinnuverkefnið sem Vegagerðin stendur að.

Gjaldtakan verður sjálfvirk og vegfarendur þurfa ekki að skrá sig eða borga á þeim tíma sem ekið er um veginn. Sjálfvirk myndavélagreining verður á bílnúmerum sem flettir upp í ökutækjaskrá. Reikningur er sendur í heimabanka um hver mánaðamót. 

Afsláttarkjör verða fyrir litla og millistóra bíla og þak sett á mánaðarlegar greiðslur.