25 júní 2026

/

Heilbrigðisráðuneytið

Fimm umsækjendur um embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Austurlands

{image.Description}
Mynd: Heilbrigðisráðuneyti
Heilbrigðisstofnun Austurlands

Frestur til að sækja um embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Austurlands rann út 22. júní sl. Umsækjendur um embættið eru fimm. Þriggja manna hæfnisnefnd skipuð á grundvelli laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins mun meta hæfni umsækjenda og skila ráðgefandi álitsgerð til heilbrigðisráðherra sem skipar í stöðuna til 5 ára.

Umsækjendur um embættið eru eftirtaldir:

  • Arna Rut Ottesen Gunnarsdóttir, framkvæmdarstjóri
  • Gunnar Kristinn Þórðarson, stuðningsfulltrúi
  • Jón Magnús Eyþórsson , tölvunarfræðingur
  • Jórunn Ósk Frímannsdóttir Jensen, hjúkrunarfræðingur
  • Þórarna Gró Friðjónsdóttir, settur forstjóri