25 júní 2026

/

Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Verkefnisstjórn um gerð landsáætlunar um landgræðslu og skógrækt

{image.Description}
Verkefnisstjórn um endurskoðun landsáætlunar um landgræðslu og skógrækt.

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur skipað verkefnisstjórn sem falið er að endurskoða landsáætlun um landgræðslu og skógrækt, en lögum samkvæmt skal gefa út landsáætlun eigi sjaldnar en á fimm ára fresti og til tíu ára í senn.

Fyrsta sameiginlega stefna og framtíðarsýn í málaflokknum var gefin út í ágúst 2022 undir heitinu Land og líf: Stefna og framtíðarsýn í landgræðslu og skógrækt til ársins 2031. Samhliða stefnunni var gefin út fimm ára aðgerðaáætlun fyrir tímabilið 2022–2026.

Auk þeirra áherslumála sem kveðið er á um í lögum leggur ráðherra sérstaka áherslu á vernd og endurheimt kolefnisríkra vistkerfa og vistkerfa sem eru mikilvæg fyrir líffræðilegra fjölbreytni. Jafnframt er lögð áhersla á aukna verðmætasköpun úr skógum landsins, aukið aðgengi að landupplýsingum og aukið samstarf stofnana á því sviði. Einnig er lögð áhersla á aukna þátttöku samfélagsins og tengingu aðgerða við lífsgæði og að útivist verði efld.

Verkefnisstjórninni er m.a. falið að vinna stöðumat á framkvæmd gildandi stefnu þar sem metinn verður árangur, framgangur aðgerða og helstu áskoranir. Í framhaldinu verða unnin drög að endurskoðaðri stefnu og aðgerðaáætlun sem verða kynnt og send til umsagnar áður en endanleg áætlun verður lögð fram.

Í verkefnisstjórninni sitja:

  • Ágúst Sigurðsson, forstöðumaður Lands og skógar, formaður,
  • Brynhildur Bjarnadóttir, dósent við Háskólann á Akureyri,
  • Helga María Pálsdóttir, sviðsstjóri, tilnefnd af sambandi íslenskra sveitarfélaga,
  • Ingunn Agnes Kro, lögfræðingur,
  • Sigurður Torfi Sigurðsson, ráðunautur hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
  • Salome Hallfreðsdóttir, fulltrúi umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis.

Hrefna Jóhannesdóttir, teymisstjóri stefnumótunar hjá Landi og skógi, er starfsmaður verkefnisstjórnar.

Áætlað er að ný stefna og aðgerðaáætlun verði gefin út eigi síðar en 1. mars 2027.

 

Núgildandi áætlanir:

Land og líf: Stefna og framtíðarsýn í landgræðslu og skógrækt til ársins 2031

Land og líf: Aðgerðaáætlun í landgræðslu og skógrækt 2022-2026