26 júní 2026
/
Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Samstarf við Akureyrarakademíuna og Reykjarvíkurakademíuna
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið hefur gert þriggja ára samstarfssamning við Akureyrarakademíuna og Reykjavíkurakademínuna. Hvor um sig er sjálfstæð sjálfseignarstofnun.
Markmið samninganna er m.a. að styrkja umgjörð sjálfstæðra rannsakenda auk þess að efla þekkingardrifna starfsemi og fræðastarf.
„Með undirritun þriggja ára samninga skapist stöðugleiki fyrir þessa mikilvægu starfsemi þar sem sjálfstæðir fræðimenn geta nýtt krafta sína í fjölbreytt verkefni og rannsóknir í hvetjandi umhverfi og félagsskap,“ segir Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra.
Akureyrarakademían er vettvangur sjálfstætt starfandi fræðafólks á Norðurlandi og vinnur að því að efla rannsóknir, þekkingarsköpun og miðlun fræða. Akademían rekur miðstöð sjálfstætt starfandi fræðimanna þar sem fræðafólk, höfundar og rannsakendur hafa aðstöðu til starfa og samstarfs. Jafnframt stendur Akademían fyrir fjölbreyttum fyrirlestrum, málþingum og öðrum viðburðum sem stuðla að umræðu og þekkingarmiðlun til samfélagsins
Akureyrarakademían og þáverandi mennta- og menningarmálaráðuneyti undirrituðu samstarfssamning árið 2015 sem gilti út árið 2017, en eftir það hafa verið gerðir árlegir viðaukar um framlengingu samstarfsins. Akureyrarakademían fellur nú undir málefnasvið menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytis, eins og önnur fræða- og þekkingarsetur í landinu, sem og háskólastofnanir.
Með samningnum við Akureyrarakademíuna mun ráðuneytið styðja við rekstur vinnurýmis og samstarfsvettvangs sjálfstæðra rannsakenda, frumkvöðla, háskólanema og fleiri. Jafnframt verður lögð áhersla á miðlun rannsókna og fræða til samfélagsins með viðburðum, útgáfu og stafrænni miðlun.
Samningurinn styður við stefnumörkun stjórnvalda um eflingu rannsókna, nýsköpunar og háskólastarfs um land allt. Samningurinn undirstrikar jafnframt mikilvægi Akureyrar sem samkeppnishæfrar svæðisborgar og öflugs þekkingar- og rannsóknaseturs.
Reykjavíkurakademían er málsvari fræðafólks sem starfar sjálfstætt, einkum á sviði menningar- hug- og félagsvísinda. Þá rekur stofnunin Miðstöð fræðafólks utan háskólanna í Hafnarstræti 5. Þar er aðsetur fræðimanna, félagasamtaka og smærri fyrirtækja og þangað sækja félagar Reykjavíkurakademíunnar fjölbreytta þjónustu.
Með samningnum verður stutt við starfsemi Reykjavíkurakademíunnar sem vettvangs fyrir samstarf, tengslamyndun og þekkingarmiðlun meðal sjálfstæðra rannsakenda, fræðafólks, frumkvöðla og framhaldsnema. Jafnframt verður lögð áhersla á miðlun rannsókna og fræða til samfélagsins. Markmið samningsins er því meðal annars að styrkja umgjörð sjálfstæðs fræðafólks og rannsakenda og efla þannig þekkingardrifna, skapandi og fræðilega starfsemi á höfuðborgarsvæðinu.
Samningurinn undirstrikar mikilvægi fjölbreytts og skapandi fræða- og þekkingarsamfélags á höfuðborgarsvæðinu samhliða starfsemi háskóla og annarra þekkingarstofnana.