26 júní 2026

/

Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Úthlutun úr Grænlandssjóði 2026

{image.Description}
Grænland. Mynd: HJ

Stjórn Grænlandssjóðs hefur gert tillögu til menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra um úthlutun úr Grænlandssjóði fyrir árið 2026. Grænlandssjóður starfar samkvæmt lögum nr. 108/2016.

Hlutverk hans er að efla samskipti Grænlands og Íslands. Sjóðurinn veitir styrki til kynnisferða, námsdvalar, listsýninga, íþróttaviðburða og annarra málefna á sviði menningar, menntunar og vísinda sem geta stuðlað að auknum samskiptum Grænlendinga og Íslendinga.

Höfuðstóll sjóðsins, sem ríkissjóður lagði til á árunum 1981 og 1982, er í vörslu Seðlabanka Íslands.

Stjórn Grænlandssjóðs lagði mat á umsóknir og gerði að tillögu sinni til ráðherra að eftirfarandi verkefni hlytu styrk á árinu 2026 og á það hefur ráðherra fallist. Heildarfjárhæð styrkjanna er 4.790.000 kr.

  •  Kalak – vinafélag Íslands og Grænlands. Heimsókn grænlenskra skólabarna til Íslands: 1.500.000 kr.
  • Nuuk Shotokan Karate-Do. Æfingaferð til Íslands fyrir börn: 1.000.000 kr.
  • GSS Meeqqat Arsartartut. Fótboltaæfingabúðir fyrir börn: 1.000.000 kr
  • Ester Jónsdóttir. Rannsókn á upplifun sjómanna á Grænlandi af umhverfis- og loftslagsbreytingum: 500.000 kr.
  • Hinsegin dagar í Reykjavík og Nuuk Pride – samstarfsverkefni: 790.000 kr.

Auglýst var eftir umsóknum um styrki úr Grænlandssjóði 27. mars síðastliðinn. Umsóknarfrestur var til 22. apríl. Alls bárust 30 umsóknir - sem er 50% aukning milli ára.