29 júní 2026

/

Atvinnuvegaráðuneytið

Fjárfestingastuðningur í kornrækt 2026

{image.Description}
istock/Nastco

Atvinnuvegaráðuneytið hefur opnað fyrir umsóknir um fjárfestingastuðning í kornrækt.

Stuðningur er veittur til fjárfestinga í kornþurrkunarstöðvum vegna nýframkvæmda, stækkunar og endurbóta á stöðvum sem þegar eru í rekstri.  Einnig fyrir sérhæfðar korngeymslur, sérhæfð flutningatæki fyrir korn og kornþreskivélar.

Með umsókn þarf að fylgja:

  • Viðskiptaáætlun sem lýsir fyrirhugaðri starfsemi, staðsetningu hennar og umfangi.Fram komi upplýsingar um orkugjafa við starfsemina, afkastagetu og umfang kornræktar á starfssvæðinu.Einnig skal gera grein fyrir rekstrarfyrirkomulagi starfseminnar, s.s. hvort umsækjandi er eingöngu þjónustuaðili við kornþurrkun eða afurðastöð sem stundar sölustarfsemi eða viðskipti með korn.

  • Sundurliðuð kostnaðar- og framkvæmdaáætlun með tímasettri verkáætlun, unnin af fagaðila s.s. Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins, verkfræðistofu eða öðrum sambærilegum aðila.

  • Samþykktar teikningar og byggingaleyfi ef um nýframkvæmdir er að ræða.

Umsækjendur geta verið einstaklingar eða félög sem stunda kornrækt eða söfnun, þurrkun og geymslu korns. Sækja má um á afurð.is en félög án búsnúmers geta sent tölvupóst á atrn@atrn þar sem fram kemur staðsetning fjárfestingar og starfsemi auk kennitölu umsækjanda.

Nánari upplýsingar um forgangsröðun, afgreiðslu og mat á umsóknum má nálgast í reglugerð um fjárfestingastuðning í kornrækt nr. 350/2024.

Umsóknarfrestur er til og með 20. júlí nk.