29 júní 2026

/

Utanríkisráðuneytið

Fundað um enduruppbyggingu Úkraínu

{image.Description}
Frá fundinum í Gdansk.

Árleg ráðstefna um enduruppbyggingu Úkraínu fór fram í Gdansk í Póllandi í síðustu viku. Martin Eyjólfsson ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins leiddi sendinefnd Íslands sem var jafnframt skipuð fulltrúum sendiráðs Íslands í Varsjá og fulltrúa Jafnréttisskóla GRÓ.

Ráðstefnan fór nú fram í fimmta skiptið en hún hefur verið haldin árlega frá upphafi allsherjarinnrásar Rússlands í Úkraínu árið 2022. Hún er mikilvægur liður í því að tryggja áframhaldandi stuðning við Úkraínu, finna leiðir til fjármögnunar og til að stuðla að breiðri þátttöku við enduruppbyggingu landsins, en þar koma saman fulltrúar ríkja, alþjóðastofnana, félagasamtaka og einkageirans. 

Forsætisráðherra Póllands, Donald Tusk, var formlegur gestgjafi ráðstefnunnar, en sendinefnd Úkraínu var leidd af forsætisráðherra landsins, Ylia Svyrydenko.

Sendinefnd Íslands tilkynnti þar um viðbótarstuðning íslenskra stjórnvalda við sérstakan orkusjóð (e. Ukraine Energy Support Fund) sem sérhæfir sig í kaupum á nauðsynlegum búnaði og varahlutum svo tryggja megi eftir fremsta megni stöðugan aðgang að rafmagni og hitaveitu þrátt fyrir viðvarandi árásir Rússa. Stuðningur við orkumál er brýnt forgangsmál stjórnvalda í Úkraínu en síðasti vetur var sá erfiðasti fyrir borgara landsins síðan allsherjarinnrás Rússlands hófst.

Rússland beindi loftárásum sínum gagngert á orkuinnviði Úkraínu, ekki síst rafmagns- og hitaveitur landsins, en gert er ráð fyrir því að Rússland beiti sömu aðferðarfræði næsta vetur. Því hefur veruleg áhersla verið lögð á að bæta viðnámsþol innviða Úkraínu, auka dreifstýringu og fjölga smærri orku- og hitaverum.

Ísland tilkynnti jafnframt um þátttöku í sérstöku aðgerðarbandalagi um neðanjarðarskýli í Úkraínu (e. Shelter Coalition) sem er liður í þróun almannavarna landsins. Framlag Íslands kemur til með að nýtast við byggingu neðanjarðarskýla í skólum til að tryggja samfellt skólahald úkraínskra grunnskólabarna. 

Allur stuðningur íslenskra stjórnvalda við uppbyggingu í Úkraínu er hluti af framlögum til alþjóðlegrar þróunarsamvinnu Íslands og eru framlög til verkefnanna því innan fjárheimilda samkvæmt fjárlögum. 

Að auki undirritaði Irma Erlingsdóttir, forstöðumaður Jafnréttisskóla GRÓ, viljayfirlýsingu við úkraínska mennta-og þjálfunarstofnun um samstarf á sviði jafnréttisþjálfunar. 

Næsta ráðstefna af þessu tagi verður haldin í Tallinn í Eistlandi að ári.