29 júní 2026
/
Heilbrigðisráðuneytið
Geðteymi fangelsa orðið hluti af réttar- og öryggisgeðþjónustu Landspítala
Rekstur geðteymi fangelsa færðist 1. maí síðastliðinn frá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins til Landspítala. Með breytingunni skapast aukin tækifæri til nánara samstarfs milli geðþjónustu Landspítala og geðteymis fangelsa með það að markmiði að bæta þjónustu við einstaklinga í viðkvæmri stöðu með flókinn geðrænan vanda og aukna áhættuhegðun.
Með flutningi teymisins til Landspítala verður geðteymi fangelsa hluti af heildstæðri þjónustu innan réttar- og öryggisgeðþjónustu spítalans sem spannar sérhæfðar legudeildir, samfélagsmiðaða ferliþjónustu og þjónustu innan fangelsa. Með því skapast betri forsendur fyrir samræmdu verklagi, aukinni þverfaglegri samvinnu og styrkari tengingu milli meðferðar innan og utan stofnana.
Fjallað er um breytinguna í tilkynningu á vef Landspítalans. Eins og þar kemur fram hefur starfsfólk geðteymis fangelsa um árabil byggt upp mikilvæga sérþekkingu á geðheilbrigðisþjónustu innan refsivörslukerfisins og mikill fengur af því fyrir Landspítala að fá teymið inn í starfsemi spítalans. Lögð er áhersla á að breytingarnar verði unnar í góðu samstarfi við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Fangelsismálastofnun og aðra samstarfsaðila.