29 júní 2026

/

Dómsmálaráðuneytið

Umsækjendur um embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu

{image.Description}

Sex sóttu um embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. Embættið var auglýst laust til umsóknar 2. júní og var umsóknarfrestur til 26. júní. Umsækjendur eru:

  • Birgir Jónasson, lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra
  • Margrét Kristín Pálsdóttir, settur lögreglustjóri á Suðurnesjum
  • María Káradóttir, settur lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu
  • Serhii Duiko, sjúkraliði á Grund
  • Úlfar Lúðvíksson, fyrrv. lögreglustjóri á Suðurnesjum
  • Vera Dögg Guðmundsdóttir, nefndarmaður KNÚ

Dómsmálaráðherra skipar í embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu til fimm ára í senn sbr. lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996.