30 júní 2026

/

Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Auglýst er eftir umsóknum úr sjóðnum Gjöf Jóns Sigurðssonar

{image.Description}

Gjöf Jóns Sigurðssonar veitir viðurkenningar fyrir rit sem lúta að sögu Íslands, bókmenntum þess, lögum, stjórn eða framförum. Auglýst er eftir umsóknum og úthlutað úr sjóðnum á tveggja ára fresti og er skilafrestur umsókna jafnan 1. september. Koma þá til álita þau rit sem komið hafa út eftir síðasta umsóknafrest sjóðsins tveimur árum áður.

Í reglum frá árinu 1881 um Gjöf Jóns Sigurðssonar er kveðið á um að fé úr sjóðnum megi veita: 

1. til verðlauna fyrir vel samin vísindaleg rit
2. til að styrkja útgáfur slíkra rita annars kostar 
3. til að styrkja útgáfur merkilegra heimildarrita

Enn fremur segir „Öll skulu rit þessi lúta að sögu Íslands, bókmenntum þess, lögum, stjórn eða framförum“. Á árinu 1974 var bætt við ákvæði þess efnis „að þegar sérstök ástæða þyki til, megi verja fé til viðurkenningar á viðfangsefnum og störfum höfunda, sem hafa vísindarit í smíðum“.

Umsækjendur um verðlaun úr sjóðnum skulu senda nefndinni þrjú eintök þeirra rita er þeir óska að tekin verði til álita. Miðað er við rit, gefin út frá 1. september 2024. Æskilegt er að þeim fylgi umsögn viðurkenndra fræðimanna, sérfróðra um efnið.

Sækja þarf um rafrænt á Eyðublaðavef Stjórnarráðsins og koma þremur eintökum því riti sem umsóknin á við um, til menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins, Reykjarstræti 8, 101 Reykjavík, merkt verðlaunanefnd Gjafar Jóns Sigurðssonar, fyrir 15. september næstkomandi.

Sjá upplýsingar um síðustu úthlutun hér.