01 júlí 2026
/
Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Friðlandið við Gróttu stækkað til að styrkja vernd mikilvægs fugla- og fjörusvæðis
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur staðfest stækkun friðlandsins við Gróttu á Seltjarnarnesi. Stækkunin tryggir heildstæðari vernd fuglalífs og verðmætra fjöru- og grunnsævisvistgerða, sem mynda eitt mikilvægasta strandsvæði höfuðborgarsvæðisins. Með endurskoðaðri friðlýsingu nær verndin nú einnig til Seltjarnar, sem er eitt mikilvægasta fæðu- og hvíldarsvæði fugla á svæðinu.
Stækkunin var unnin í samstarfi við Seltjarnarnesbæ, Náttúruverndarstofnun og Minjastofnun Íslands.
Grótta er eitt þekktasta útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins og jafnframt eitt mikilvægasta fuglasvæðið. Þar verpa hundruð para af kríu á hverju sumri, en krían er ábyrgðartegund Íslands og nýtur sérstakrar verndar. Auk hennar verpa þar meðal annars æðarfugl, grágæs, tjaldur, sandlóa og stelkur. Á vorin og haustin er svæðið einnig mikilvægur viðkomustaður farfugla, svo sem rauðbrystings og sanderlu.
Með friðlýsingunni er jafnframt aukin vernd veitt Seltjörn, grunnu strandsvæði þar sem fjörur og grunnsævi skapa mikilvægar fæðuaðstæður fyrir fjölmargar fuglategundir. Þar er líka að finna sjaldgæfar og verðmætar vistgerðir, meðal annars fjörumó og sandmaðksleirur, sem eru ríkar af lífi og gegna lykilhlutverki fyrir fuglalíf. Þá var sérstaklega hugað að meðalhófssjónarmiðum til að gæta jafnvægis milli friðar fyrir fuglalíf á viðkvæmustu tímum ársins með tilliti til varps, og útivistar og íþróttaiðkunar á svæðinu.
Uppfærð friðlýsing kveður á um að umferð um Seltjörn sé óheimil á tímabilinu 1. maí – 31. júlí, en Seltjörn er mikilvæg uppspretta fæðu fyrir varpfugla yfir varptímann ásamt því að vera hvíldarsvæði fuglanna. Eru takmarkanirnar, sem m.a. hafa áhrif á iðkun drekabretta, taldar nauðsynlegar til að ná fram tilætlaðri vernd á grundvelli laga um náttúruvernd, enda takmarkanir aðeins bundnar við þann tíma sem fuglalíf er hvað viðkvæmast. Byggt er á alþjóðlegum og innlendum gögnum við mat á áhrifum.
Saman mynda Grótta og Seltjörn fjölbreytt náttúrusvæði þar sem fuglalíf, lífríkar fjörur og sérstakar strandvistgerðir eru í forgrunni.
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra: „Vernd líffræðilegrar fjölbreytni hefst oft nær okkur en við gerum okkur grein fyrir. Með því að stækka friðlandið við Gróttu erum við að styrkja vernd mikilvægs fugla- og strandsvæðis um leið og við stöndum vörð um náttúruverðmæti sem eru hluti af daglegu lífi fólks og þúsundir njóta á hverju ári.“
Friðlandið er hluti af stærra strandsvæði sem hefur verið skilgreint sem alþjóðlega mikilvægt fuglasvæði. Við endurskoðun friðlýsingarinnar var meðal annars horft til alþjóðlegra skuldbindinga Íslands samkvæmt Bernarsamningnum, Ramsarsamningnum og samningnum um líffræðilega fjölbreytni.
Hið friðlýsta svæði er alls um 1,5 km² að stærð.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra ásamt fulltrúum Náttúruverndarstofnunar og Seltjarnanesbæjar, sem stækkunin var unnin í góðu samráði við.