01 júlí 2026

/

Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Heildarendurskoðun á reglugerð um Loftslags- og orkusjóð til kynningar í Samráðsgátt

{image.Description}
Hugi Ólafsson
Horft að Keili frá Sjálandi í Garðabæ

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur sett til kynningar í Samráðsgátt stjórnvalda drög að reglugerð um Loftslags- og orkusjóð sem felur í sér afnám skilgreiningar á reglum styrkjakalla.

Um er að ræða heildarendurskoðun á reglugerð 1566/2024 og er markmið að einfalda og fjarlægja úrelt ákvæði sem tengjast eldri styrkjaköllum.

Samkvæmt drögum að nýju reglugerðinni ber stjórn sjóðsins og umsýsluaðila styrkjakalls að birta ítarlegar leiðbeiningar og handbækur fyrir hvert styrkjakall, í stað þess að reglur styrkjakalla séu skilgreindar sérstaklega í reglugerð eins og nú er. Stjórn Loftslags- og orkusjóðs er ennfremur gert að setja sér verklagsreglur sem kveða eiga meðal annars á um rökstuðningur ákvörðunar sjóðsins sé tilgreindur í svörum sem send eru öllum umsækjendum í samkeppnisstyrkjaköllum.

Athygli er vakin á því að frestur til að senda umsögn í samráðsgátt er til 5. ágúst nk.

Reglugerð um Loftslags- og orkusjóð