01 júlí 2026
/
Heilbrigðisráðuneytið
Lagasetning um takmörkun á beitingu nauðungar
Frumvarp heilbrigðisráðherra um breytingu á lögum um réttindi sjúklinga sem lögfestir meginregluna um bann við beitingu nauðungar í heilbrigðisþjónustu hefur verið samþykkt á Alþingi. Einungis verður heimilt að víkja frá því banni í sérstökum einstaklingsbundnum undantekningartilvikum ef það er óhjákvæmilegt til að tryggja öryggi sjúklingsins eða annarra eða uppfylla lífsnauðsynlegar þarfir viðkomandi einstaklings. Lögin setja einnig ríkar skorður við fjarvöktun sjúklinga og kveða skýrt á um sjálfsákvörðunarrétt sjúklings við val á meðferð og hvort hann þiggur eða hafnar meðferð. Lögin taka gildi 1. júní 2027 og er undirbúningur að innleiðingu þeirra þegar hafinn.
Frumvarp um takmörkun á beitingu nauðungar hefur ítrekað verið lagt fram á Alþingi, fyrst árið 2021 og í fjórða sinn á nýafstöðnu löggjafarþingi þar sem það varð að lögum. Í þessu ferli var það tekið til ítarlegrar umfjöllunar í samráðshópi til að fjalla nánar um afstöðu notendahópa til málsins og mögulegra breytinga á frumvarpinu.
Alma D. Möller heilbrigðisráðherra segir skiljanlegt að þessi lagasetning hafi tekið langan tíma: „Þetta er verulega flókið málefni þar sem taka þarf tillit til margvíslegra sjónarmiða sem varða líf og heilsu fólks, öryggi og gæði meðferðar sjúklinga og síðast en ekki síst mannréttindaákvæði stjórnarskrárinnar og alþjóðlegra mannréttindasáttmála. Ég er þakklát öllum þeim sem lagt hafa af mörkum til að gera þessa löggjöf sem best úr garði og tel vel hafa tekist til. Þessi lagasetning er mikil réttarbót að mínu mati.“
Með lagabreytingunni hafa verið sett ný ákvæði um skilgreiningu nauðungar og fjarvöktunar og um skilyrði fyrir beitingu þessara úrræða. Einnig er kveðið á um sérreglur sem varða börn yngri en 18 ára til að tryggja hagsmuni þeirra og réttindi. Meðal annars skulu ákvarðanir um undanþágur frá banni við beitingu nauðungar eða fjarvöktunar gagnvart börnum sæta tíðari endurskoðun en ef fullorðnir ættu í hlut.
Skýra lagaheimild þarf fyrir beitingu nauðungar
Óheimilt er að beita einstaklinga nauðung eða takmarka stjórnarskrárvarin réttindi þeirra nema fyrir því standi skýr lagaheimild. Og jafnvel þótt lagaheimild sé til staðar gilda almennt ströng skilyrði um beitingu inngripa gagnvart persónuréttindum er varða líf og frelsi einstaklinga. Í lögunum er kveðið á um málsmeðferðarreglur sem fylgja þarf ef nauðung eða fjarvöktun er beitt á grundvelli mats um að það hafi verið óhjákvæmilegt. Málsmeðferðarreglurnar taka m.a. til skráningarskyldu slíkra tilvika, kæruheimilda og rétt til að bera mál undir dómstóla.
Markmiðið með lögfestingu sérstakra málsmeðferðarreglna ef beitt er nauðung eða fjarvöktun er að tryggja betur réttindi sjúklinga. Þannig þurfa athafnir og ákvarðanir sem tengjast nauðung og fjarvöktun að eiga sér fullnægjandi lagastoð og samræmast að öðru leyti ákvæðum stjórnarskrár, mannréttindasáttmála og alþjóðlegra skuldbindinga sem íslenska ríkið hefur undirgengist.
Sérfræðiteymi um beitingu nauðungar
Skipað verður sérfræðiteymi um beitingu nauðungar í heilbrigðisþjónustu sem skal vera til ráðgjafar og leiðbeiningar, taka við skýrslum um beitingu nauðungar og fjarvöktun og sinna eftirliti. Öll tilvik sem fela í sér nauðung eða fjarvöktun í heilbrigðisþjónustu skulu skráð.
Kæruheimild
Í lögunum er tryggður réttur sjúklinga til að kæra ákvörðun um að víkja frá banni við beitingu nauðungar eða banni við fjarvöktun til úrskurðarnefndar velferðarmála. Einnig er hægt að kæra beitingu nauðungar sem beitt er án þess að fyrir liggi ákvörðun þar að lútandi.