02 júlí 2026

/

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Auglýst eftir umsóknum um styrki úr þróunarsjóði innflytjendamála

{image.Description}

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki úr þróunarsjóði innflytjendamála. 

English version of this text:
Call for applications for grants from the Development Fund for Immigrant Issues

 

Við úthlutun styrkja úr þróunarsjóði innflytjendamála árið 2026 verður áhersla lögð á verkefni sem:

  • Stuðla að virkri notkun íslensku í daglegu lífi, bæði í starfi og frítíma, og skapa þannig tækifæri til að læra og nota íslensku og stuðla að því að íslenska sé eðlilegt fyrsta val í samskiptum. Áhersla verður lögð á verkefni sem byggja á raunverulegum aðstæðum, sérstaklega fyrir ungmenni á aldrinum 16-25 ára og fullorðna.
  • Styðja ungt fólk sem er nýkomið til landsins og foreldra framhaldsskólanema úr röðum innflytjenda. Verkefnin hafi það að markmiði að rjúfa félagslega einangrun, efla jákvæð samskipti og styrkja félagsleg tengsl með virkri þátttöku innflytjenda sjálfra, meðal annars með brúarsmiðum ogmiðlun milli menninga.
  • Vinna gegn fordómum, hatursorðræðu og rangfærslum í stafrænu umhverfi meðal annars með fræðslu, forvörnum og hagnýtum verkfærum til að bregðast við mismunun og áreitni á netinu.

Félaga- og hagsmunasamtök innflytjenda eru sérstaklega hvött til þess að sækja um.

Frestur til 15. september og sótt um á netinu

Styrkir verða veittir einstaklingum, félögum, samtökum og opinberum aðilum. Styrkir geta að hámarki numið 75% af áætluðum heildarkostnaði verkefnis. Sækja má um bæði á íslensku og ensku og eru 50 milljónir kr. til úthlutunar.

Umsóknarfrestur er til og með 15. september 2026.

Umsókn sem berst eftir að umsóknarfrestur er liðinn verður ekki tekin til umfjöllunar.

Frekari upplýsingar fást í félags- og húsnæðismálaráðuneytinu í síma 545 8100 og með tölvupósti á netfangið [email protected].

Hlutverk þróunarsjóðs innflytjendamála er að styðja þróunarverkefni og efla rannsóknir á sviði innflytjendamála með það að markmiði að auðvelda gagnkvæma inngildingu innflytjenda og íslensks samfélags.