02 júlí 2026
/
Utanríkisráðuneytið
Hver sér um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslunnar?
Til upplýsingar: Þessi upplýsingamoli var birtur á vef utanríkisráðuneytisins sem hluti af sérstakri upplýsingasíðu sem sett var í loftið í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið sem fram fór 29. ágúst 2026. Þjóðaratkvæðagreiðslan, sem haldin var á grunni stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnarinnar frá 21. desember 2024, fór þannig að 52,8% Íslendinga hafnaði því að aðildarviðræður við Evrópusambandið yrðu teknar upp að nýju. Já sögðu 47,2% kjósenda en þátttaka í atkvæðagreiðslunni var 82,6%.
--------
Hver sér um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslunnar?
Þjóðaratkvæðagreiðslan 29. ágúst nk. fer fram samkvæmt kosningalögum, nr. 112/2021. Landskjörstjórn, sem er sjálfstæð stjórnsýslunefnd, hefur yfirumsjón með framkvæmd kosninga á Íslandi og annast jafnframt framkvæmd kosningalaga.
Meðal hlutverka landskjörstjórnar í tengslum við þjóðaratkvæðagreiðsluna sem boðuð hefur verið 29. ágúst nk. er að standa fyrir víðtækri kynningu á málefninu sem borið er undir þjóðaratkvæði. Landskjörstjórn setur að auki nánari reglur um fyrirkomulag kynningarinnar.
Þó svo að landskjörstjórn fari með yfirumsjón kosninga eru fleiri aðilar sem koma að framkvæmdinni. Hægt er að sjá yfirlit þar um hér.
Upplýsingar um þjóðaratkvæðagreiðsluna, þ.m.t. um utankjörfundaratkvæðagreiðslu, má nálgast á vef landskjörstjórnar.