02 júlí 2026

/

Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Tónlistarsjóður úthlutar 58 milljónum til 47 verkefna

{image.Description}
Mynd: Tónlistarmiðstöð

Úthlutunarnefndir Tónlistarsjóðs hafa lokið vinnu vegna seinni úthlutunar 2026. Tónlistarsjóður er fjármagnaður af menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu.
Í sjóðinn bárust alls 431 umsókn og var heildarupphæð styrkumsókna 704.434.577 kr. Til úthlutunar voru 57.888.470 kr. sem veitt er til samtals 47 verkefna sem skiptast svo á milli fjögurra deilda sjóðsins.

Frumsköpun og útgáfa - tónlistarstyrkir

234 umsóknir sóttu um alls 324.782.323 kr. Alls er 20.850.000 kr. veitt til 22 verkefna. Hæstu verkefnastyrkinn eða 2 m.kr. fær tónlistarmaðurinn Bjarni Daníel Þorvaldsson. Þá hljóta Ellen Kristjánsdóttir og Þórður Magnússon 1,8 m.kr. í styrk hvort.

Lifandi flutningur - flytjendastyrkir

98 umsóknir sóttu um alls 119.145.139 kr. Alls er 12.452.500 kr. úthlutað til 10 verkefna. Óperukompaníið HinÓperan hlýtur hæsta verkefnastyrkinn eða tæplega 2,7 m.kr. Moses Hightower hlýtur tæplega 2,2 m.kr. fyrir tónleikaferðalag um landið. Þá hlýtur kammertónlistarhópurinn Meltríó verkefnastyrk upp á rúmlega 1,8 m.kr. fyrir tónleika sem haldnir verða víða um land.

Þróun og innviðir - viðskiptastyrkir

Alls bárust 79 umsóknir um samtals 227.792.743 kr.

Til úthlutunar eru kr. 18.220.000 sem úthlutað er til 9 verkefna.

Hæstu verkefnastyrki, 3 m.kr., hljóta Myrkir músíkdagar og VAKA Þjóðlistahátíð. Þá hlýtur  tónlistarhátíðin Sátan 2,5 m.kr. í styrk.

‍Útflutningur - markaðsstyrkir

22 umsóknir sóttu um 32.714.372 kr. Úthlutað er 6.365.970 kr. til 6 verkefna. Hæsta styrkinn hlýtur Bedroom Community upp á 2 m.kr.

Flestir styrkir Tónlistarsjóðs að þessu sinni eru veittir til einstaklinga eða 54%, 23% fara til fyrirtækja og aðrir styrkir til félagasamtaka, stofnanna og annarra umsækjenda.

Heildar árangurshlutfall umsókna er 11%. Alls 76% af veittri upphæð fara til verkefna á höfuðborgarsvæðinu, 15% til verkefna annars staðar á landinu og 9% til verkefna sem fara fram erlendis.

Nánari upplýsingar má nálgast á vef Tónlistarmiðstöðvar.