03 júlí 2026

/

Heilbrigðisráðuneytið

Aðgerðaáætlun um mönnun heilbrigðisþjónustu

{image.Description}
Stjórnarráðið

Birt hefur verið aðgerðaáætlun til tveggja ára, um framkvæmd Mönnunarstefnu í heilbrigðisþjónustu til ársins 2030. Mönnunarstefnan tekur mið af dreifingu og nýtingu mannafla heilbrigðisþjónustunnar og mannaflaþörf til framtíðar. Í aðgerðaáætluninni er fjallað um áherslur og verkefni sem unnið verður að árin 2026 og 2027 í samræmi við markmið stefnunnar.

Í áætluninni eru tilgreindar aðgerðir á sjö sviðum sem eru:

  • Mönnun og aðgengi að heilbrigðisþjónustu
  • Gögn og greiningar um mönnun
  • Menntun og þjálfun
  • Löggiltar heilbrigðisstéttir, starfsleyfi og sérfræðileyfi
  • Starfsumhverfi, ráðningar og nýliðun
  • Öryggi, réttindi og heilsa heilbrigðisstarfsfólks
  • Tækni og nýsköpun

Áhersla er lögð á mikilvægi þess að horfa til allra þátta sem hafa áhrif á mönnunarþörf til að tryggja áframhaldandi eflingu menntunar og mönnunar í heilbrigðisþjónustu hér á landi með það að markmiði að tryggja sjálfbærni mönnunar. Ekki síst þarf að leggja aukna áherslu á  starfsumhverfið í heild, þverfaglega teymisvinnu, verkaskiptingu og mögulegar tilfærslur verkefna í þágu bættrar þjónustu við notendur. Er þá sérstaklega horft til þess að mönnun sé í samræmi við þjónustuþörf á hverjum stað. 

Vönduð gögn um mannafla heilbrigðisþjónustunnar og greiningar byggðar á þeim eru mikilvæg forsenda fyrir raunhæfum mönnunarspám og markvissum aðgerðum á sviði mönnunar og menntunar í heilbrigðisþjónustu. Unnið er að því að byggja upp stafrænt mælaborð sem veitir á einum stað yfirsýn yfir mönnun á öllum opinberum heilbrigðisstofnunum. Mikilvægt er að einnig séu fyrir hendi greinagóð gögn og upplýsingar um starfandi heilbrigðisstarfsmenn eftir fagstéttum og sérfræðigreinum á einkareknum starfsstöðvum sem sinna heilbrigðisþjónustu á grundvelli samninga og gert ráð fyrir að hefja þá vinnu á tíma aðgerðaáætlunarinnar. Sömuleiðis er í áætluninni gert ráð fyrir því að greina mannaflaþörf á hjúkrunarheimilum.