03 júlí 2026
/
Utanríkisráðuneytið
Aðkallandi umræða um Súdan í mannréttindaráði SÞ
Svokölluð brýn umræða (e. urgent debate) um stöðu mála í Súdan fór fram í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna í dag. Ísland var meðal þeirra ríkja sem kölluðu eftir umræðunni, en þar var einblínt á El Obeid í Norður-Kordofan héraði landsins.
Ísland flutti ávarp fyrir hönd Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna þann 14. júní sl., þar sem ríkin lýstu áhyggjum sínum af grimmdarverkum í Súdan og kölluðu eftir því að öllum árásum verði hætt tafarlaust og ábyrgðarskyldu vegna brota sinnt. Þá var Ísland meðal ríkja sem kölluðu eftir aukafundi mannréttindaráðsins (e. special session) um Súdan - í nóvember þar sem fjallað var um mannréttindabrot í El Fasher.
Staða mannúðarmála í Norður-Kordofan héraði Súdans versnar nú dag frá degi sökum vaxandi ofbeldis og hefur fjöldi fólks látið lífið þar í hörðum drónaárásum undanfarið. Talið er að hið minnsta 880 hafi látið lífið í slíkum árásum á fyrstu fjórum mánuðum ársins, að því er fram kemur í upplýsingum frá skrifstofu mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna (OCCHR). Hundruð þúsunda almennra borgara eru innlyksa í borginni El Obeid og er óttast um yfirvofandi fæðuóöryggi og voðaverk.
Sameinuðu þjóðirnar hafa ítrekað kallað eftir að öllum árásum verði hætt tafarlaust, að mannúðaraðgengi verði tryggt og vernd borgara og innviða sett í forgang. Þá hefur verið lögð áhersla á að tryggja örugga för flóttafólks frá El Obeid og vernd þeirra sem kjósa að dvelja áfram á svæðinu sem og aðgang þeirra að lífsbjargandi nauðsynjum.
Í tengslum við umræðuna í dag voru kynnt drög að ályktun sem lögð verður fyrir ráðið eftir helgi.
Ísland er eitt 47 kjörinna aðildarríkja mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna og á þar sæti í þrjú ár, 2025-2027. Mannréttindaráðið fundar í þremur reglubundnum lotum ár hvert og stendur sumarlota ráðsins nú yfir.