03 júlí 2026

/

Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Samráðshópur skipaður um ráðstöfun lífræns úrgang

{image.Description}
istock/deyanarobova

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur ákveðið að skipa sérstakan samráðshóp um lífrænan úrgang.

Meginhlutverk samráðshópsins er að móta skynsamar og rekstrarhæfar ráðstöfunarleiðir fyrir lífrænan úrgang, einkum fiskeldis- og svínamykju. Samráðshópnum er m.a. falið að taka saman töluleg gögn um magn og upprunastað fiskeldismykju og svínamykju, ræða og leggja fram mögulegar sviðsmyndir varðandi ráðstöfunarleiðir fyrir lífrænan úrgang og nauðsynlega innviðauppbyggingu á komandi árum.

Mikið hefur áunnist í fráveitumálum hér á landi undanfarna áratugi með uppbyggingu á fráveitukerfum og hreinsivirkjum. Kröfur samkvæmt nýrri fráveitutilskipun ESB munu þó hafa í för með sér frekari áskoranir hér á landi og gert er ráð fyrir að aukin hreinsun muni hafa í för með sér aukið magn af seyru sem þarf að koma í viðeigandi farveg. Fiskeldi á landi er vaxandi atvinnugrein á Íslandi og fyrirséð að magn fiskeldismykju frá atvinnugreininni muni aukast verulega á komandi árum. Þá hefur verið til skoðunar heppilegur farvegur fyrir mykju frá svínabúum. Enn fremur er ljóst að byggja þarf upp aukna innviði hér á landi til meðhöndlunar á lífrænum úrgangi.

Mikil tækifæri felast í að skoða málið heildstætt, einkum með tilliti til samlegðaráhrifa af innviðauppbyggingu fyrir meðhöndlun á öðrum lífrænum úrgangi og er því mikilvægt að ríki, sveitarfélög og atvinnulíf taki höndum saman við að móta skynsamlegar og rekstrarhæfar ráðstöfunarleiðir fyrir fiskeldi- og svínamykju hér á landi.

Samráðshópinn skipa:

  • Kjartan Ingvarsson, formaður, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti,
  • Rafn Helgason, sérfræðingur,  atvinnuvegaráðuneyti
  • Hlöðver Stefán Þorgeirsson, sérfræðingur, Umhverfis- og orkustofnun
  • Gyða Pétursdóttir, tengiliður landeldis, Bændasamtök Íslands,
  • Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri, Samtökum fyrirtækja í landbúnaði,
  • Þorsteinn Másson, sérfræðingur, Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi og
  • Sigurður Helgi Birgisson, viðskiptastjóri, Samtökum iðnaðarins.

 

Samráðshópnum er falið að skila tillögum til ráðherra fyrir 15. nóvember 2026.