03 júlí 2026

/

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Starfshópur um nýtt húsnæðislánakerfi skilar fyrstu skýrslu

{image.Description}

Starfshópur um nýtt húsnæðislánakerfi skilaði á dögunum skýrslu um fyrri hluta þess verkefnis sem honum var falið. Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, skipaði starfshópinn í mars sl. 


Hópurinn var skipaður í samræmi við áherslur stjórnvalda í húsnæðismálum í kjölfar breytinga sem urðu á lánamarkaði eftir að Hæstiréttur felldi dóma í vaxtamálunum svokölluðu í lok árs 2025. 


Verkefni hópsins er annars vegar að greina áhrif breytinganna á neytendur og hins vegar að meta hvort og þá hvernig taka megi upp nýtt húsnæðislánakerfi sem yrði gagnsærra, sveigjanlegra og fyrirsjáanlegra fyrir lántakendur.


Í skýrslunni er farið yfir þær breytingar sem orðið hafa á lánaframboði í kjölfar vaxtadómanna og metið hvort þörf sé á breytingum á lögum um fasteignalán til neytenda nr. 118/2016.

Niðurstaða hópsins er að tilefni sé til að skýra nánar ákvæði laganna um hvernig greina skuli frá skilyrðum og málsmeðferð í skilmálum skuldabréfa þegar vaxtabreytingar byggja á öðrum viðmiðum en viðmiðunarvöxtum, s.s. fjármögnunarkostnaði.


Hópurinn leggur til að málinu verði vísað til fjármála- og efnahagsráðuneytisins til frekari skoðunar og útfærslu. Við þá vinnu verði meðal annars litið til reynslu Svíþjóðar og Írlands.


Starfshópurinn mun næst greina möguleikana á því að taka upp nýtt húsnæðislánakerfi hér á landi. Þar verður meðal annars horft til fyrirkomulagsins í nágrannaríkjunum.