06 júlí 2026

/

Utanríkisráðuneytið

Ársskýrsla GRÓ fyrir árið 2025 er komin út

{image.Description}
Nemendur Jarðhitaskóla GRÓ.

Alls útskrifaðist 91 sérfræðingur úr fimm til sex mánaða námi á vegum GRÓ – Þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu á síðasta ári, en í lok ársins höfðu samtals 1.858 sérfræðingar útskrifast úr skólunum fjórum sem starfræktir eru á vegum miðstöðvarinnar.

Þetta er á meðal þess sem má lesa í nýbirtri ársskýrslu GRÓ, en þar er fjallað með ítarlegum hætti um heildarumfang starfseminnar. Þekkingarmiðstöðin heldur úti fjórum skólum, þ.e. Jafnréttisskólanum, Jarðhitaskólanum, Landgræðsluskólanum og Sjávarútvegsskólanum og styrkir útskrifaða nemendur til framhaldsnáms og luku níu styrkþegar slíku námi á síðasta ári.

„Með því að miðla reynslu Íslands á sviðum sem hafa gegnt lykilhlutverki í okkar eigin þróun – jarðhita, sjávarútvegi, landgræðslu og jafnrétti – stuðlar GRÓ að því að skapa tækifæri til varanlegra breytinga um heim allan,“ skrifar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra í inngangsorðum skýrslunnar „Árangur þeirra minnir okkur á mikilvæga staðreynd: Þróunarsamvinna snýst ekki aðeins um verkefni, skýrslur eða tölur. Hún snýst um fólk. Hún snýst um að fjárfesta í mannauði og valdefla fólk til að leiða breytingar þar sem þeirra er mest þörf.“

GRÓ – Þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu starfar undir merkjum Mennta-, vísinda- og menningarmálastofnunar Sameinuðu Þjóðanna (UNESCO).