06 júlí 2026
/
Heilbrigðisráðuneytið
Breytingar á komugjöldum 1. ágúst
Forsendur breytinganna
Endurskoðun komugjalda er að mati heilbrigðisráðuneytisins nauðsynleg í ljósi verðlagsþróunar og til að mæta vaxandi kostnaði við þjónustu samfara lýðfræðilegum breytingum, m.a. öldrun þjóðarinnar. Engar verðlagsuppfærslur hafa verið gerðar á komugjöldum í heilsugæslu sl. 18 ár, heldur hafa gjöldin lækkað í krónum talið. Árið 2019 var hætt að innheimta komugjald hjá öldruðum og öryrkjum. Með breytingunni 1. ágúst verður almennt komugjald í heilsugæslu hið sama og árið 2008, þ.e. 1.000 kr. en aldraðir, öryrkjar og börn greiða sem fyrr ekkert komugjald.
Í maí 2024 var undirritaður samningur milli Sjúkratrygginga Íslands og Félags sjúkraþjálfara til fimm ára eftir rúmlega fjögurra ára samningsleysi. Við gerð samningsins kom skýrt fram að nauðsynlegt væri að auka greiðsluþátttöku til að mæta hluta kostnaðaráhrifa samningsins, s.s. í formi sérstaks komugjalds umfram afsláttarstofns greiðsluþátttökukerfisins. Setja þurfti lagaheimild fyrir slíku gjaldi og var hún leidd í lög með breytingu á lögum um sjúkratryggingar 1. júní sl. Útgjöld vegna sjúkraþjálfunar hafa vaxið hratt frá undirritun samningsins og umfram áætlanir og stefnir fjárlagaliður þjálfunar í 3,4 milljarða króna halla á þessu ári ef ekkert verður að gert. Skýringar eru einkum þær að magn þjónustunnar hefur aukist mun meira en forsendur samningsins gerðu ráð fyrir, eða sem nemur um 7% umfram forsendur.
Helstu breytingar eru þessar:
- Komugjöld í heilsugæslu hækka hjá almennum sjúkratryggðum úr 500 kr. í 1.000 kr. og það gildir einnig um komugjöld vegna sálfræðiþjónustu. Komugjald fyrir leghálsskimanir og fyrir röntgenmyndatöku af brjóstum vegna krabbameinsleitar hækkar sömuleiðis í 1.000 kr. Sem fyrr greiða aldraðir, öryrkjar og börn ekkert komugjald.
- Utan dagvinnutíma heilsugæslu verða komugjöld almennra sjúkratryggðra 3.500 kr. í stað 3.100 kr. áður. Sem fyrr greiða aldraðir, öryrkjar og börn ekkert komugjald.
- Innheimt verður komugjald fyrir þjónustu í sjúkrabíl á vettvangi sem lýtur að öllu leyti sömu reglum og komugjald í heilsugæslu. Dæmi um slík tilvik eru sjúkrabílar sem staðsettir eru í Öræfum vegna fjarlægðar til næstu heilsugæslu og á tilfallandi útihátíðum. Gjaldið á ekki við þegar sjúkrabíll er kallaður til, en gjald vegna sjúkraflutnings verður óbreytt.
Sérstakt komugjald fyrir þjálfun frá 1. september
- Tekið verður upp sérstakt komugjald fyrir þjálfun, þ.e. sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun og talþjálfun. Almennt komugjald verður 1.500 kr., en 1.000 kr. fyrir aldraða og 500 kr. fyrir öryrkja. Ekkert komugjald verður innheimt af þeim sem eru yngri en 18 ára. Komugjaldið verður ótengt greiðsluþátttökukerfi heilbrigðisþjónustu og því alltaf hið sama, óháð fjölda koma.
- Í undirbúningi eru gagngerar breytingar á gildandi tilvísunarkerfi til sjúkraþjálfara. Krafa um tilvísun læknis verður felld niður. Mat á þörf fyrir þjálfun verður í höndum sjúkraþjálfara í nýju umsóknarferli til Sjúkratrygginga. Áhersla verður á færniskerðingu einstaklingsins og þörf hans fyrir þjálfun t.d. vegna tiltekinna sjúkdóma eða í kjölfar aðgerða. Markmiðið er að þjálfun nýtist með sem bestum hætti þeim sem helst þurfa og verður sérstaklega hugað að þeim einstaklingum sem þurfa mikla þjálfun.
Endurmat á greiðsluþátttökukerfi
Heilbrigðisráðherra hyggst hefja vinnu við endurskoðun greiðsluþátttökukerfisins með áherslu á jöfnuð og aðgengi óháð efnahag auk þess sem huga þarf að fjármögnun heilbrigðiskerfisins til framtíðar.