06 júlí 2026
/
Utanríkisráðuneytið
Samstarf um öryggi og varnir á Norður-Atlantshafi og norðurslóðum
Öryggi á Norður-Atlantshafi og á norðurslóðum og samstarf Íslands og Bretlands á vettvangi Atlantshafsbandalagsins voru í forgrunni fundar sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, átti með Dan Jarvis, varnarmálaráðherra Bretlands í gær. Þá var rætt um samstarf ríkjanna innan sameiginlegu viðbragðssveitarinnar (JEF), vaxandi tvíhliða varnarsamstarf Íslands og Bretlands og leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins sem fram fer í Ankara í Tyrklandi og hefst á morgun.
Fundur ráðherranna fór fram um borð í breska flugmóðurskipinu HMS Prince of Wales, sem nú siglir um Norður-Atlantshaf og norðurslóðir. Stefnt er að því að það komi til hafnar á Íslandi á næstu dögum.
„Það var gott og gagnlegt að geta tekið á móti varnarmálaráðherra Bretlands hér fyrir norðan. Ísland og Bretland eru auðvitað vinaríki og nágrannar hér á Norður-Atlantshafi og eiga í nánu samstarfi, nú sem endranær,” segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. „Samstarfsverkefni sem þessi sýna að saman erum við sterkari og að framlag Íslands skiptir máli og er mikils metið. Ísland leggur sitt af mörkum til að efla öryggi og varnir Atlantshafsbandalagsins með stuðningi við aðgerðir og eftirlit á Norður-Atlantshafi og norðurslóðum. Þetta er okkar nærsvæði og því er geta okkar, innviðir og sérþekking mikilvæg. Svæðið hefur mikið vægi fyrir öryggi bandalagsins í heild sinni, meðal annars vegna mikilvægra siglinga- og fjarskiptaleiða, ásamt eftirliti og viðbúnaði vegna aukinna umsvifa Rússlands og hernaðargetu á svæðinu.“
HMS Prince of Wales fer fyrir breskri flotadeild (e. Carrier Strike Group) sem að undanförnu hefur tekið þátt í æfingum Atlantshafsbandalagsins á Norður-Atlantshafi og norðurslóðum og er heimsóknin til Íslands liður í því verkefni. Þá verða framkvæmdar æfingar er tengjast loftrýmiseftirliti og loftvörnum í kringum Ísland frá skipinu. Ísland veitir aðgerðinni gistiríkjastuðning og tekur virkan þátt í henni frá stjórnstöðinni í Keflavík þar sem íslenskir sérfræðingar sinna stjórnun og eftirliti í loftrýminu. Fulltrúar breska flotans munu starfa með þeim á meðan á aðgerðinni stendur.
Utanríkisráðherra hitti sömuleiðis skipstjóra og áhöfn HMS Prince of Wales sem greindi frá verkefnum skipsins og framkvæmd aðgerðarinnar. Þá var farið í skoðunarferð um skipið.
Innan Atlantshafsbandalagsins er nú lögð aukin áhersla á aukna viðveru á norðurslóðum, einkum með árvekniaðgerðinni Arctic Sentry, sem samstarf ríkjanna er jafnframt framlag til. Aðgerðin miðar að því að efla fælingarmátt Atlantshafsbandalagsins, stuðla að auknu öryggi og bregðast við auknum umsvifum Rússa á svæðinu.
Heimsókn breska varnarmálaráðherrans og fyrirhuguð hafnarkoma HMS Prince of Wales eru einnig til marks um náið og vaxandi samstarf Íslands og Bretlands á sviði varnar- og öryggismála, einkum innan Atlantshafsbandalagsins en einnig sameiginlegu viðbragðssveitarinnar (JEF), sem Bretland leiðir. Fundur varnarmálaráðherra JEF verður haldinn á Íslandi í haust sem og leiðtogafundur JEF í byrjun næsta árs.