08 júlí 2026
/
Heilbrigðisráðuneytið
Mikilvægur þjónustusamningur við Miðstöð í öldrunarfræðum
Heilbrigðisráðuneytið hefur gert þjónustusamning við Háskóla Íslands sem hefur að markmiði að efla Miðstöð í öldrunarfræðum á sviði rannsókna og upplýsingaöflunar sem varpa ljósi á líðan, viðhorf og velferð fólks á efri árum. Samningurinn er gerður á grundvelli aðgerðaáætlunar Alþingis um þjónustu við eldra fólk og verkefni um framkvæmd hennar sem ber heitið Gott að eldast.
Í ályktun Alþingis um aðgerðaáætlunina kemur fram markmið um eflingu upplýsinga, rannsókna, nýsköpunar og þróunar þjónustu við eldra fólk (aðgerð C2). Þjónustusamningurinn miðar að þessu og felur í sér að Miðstöð í öldrunarfræðum tekur að sér söfnun samræmdra upplýsinga sem varða félags- og heilbrigðisþjónustu við eldra fólk sem og að afla upplýsinga er varða líðan, viðhorf og velferð eldra fólks, það er 67 ára og eldri. Markmiðið er að á sama stað liggi fyrir aðgengilegar, tímanlegar og samræmdar tölfræðilegar upplýsingar og niðurstöður úttekta og rannsókna sem hægt verði að nota við stefnumótun eða ákvarðanatöku um skipulag þjónustu og forgangsröðun fjármuna vegna félags- og heilbrigðisþjónustu fyrir eldra fólk.
Miðstöð í öldrunarfræðum (MíÖ) er starfrækt undir heilbrigðisvísindastofnun Háskóla Íslands í samvinnu við Landspítala og kemur í stað fyrri rannsóknarstofu Háskóla Íslands og Landspítala í öldrunarfræðum (RHLÖ) sem stofnuð var á ári aldraðra 1999. Miðstöðin hefur það meginmarkmið að efla rannsóknir og samstarf háskóla, fræðafólks, félagasamtaka og stofnana um málefni sem tengjast eldra fólki og stuðla þannig að nýsköpun og þróun í þjónustu við eldra fólk á Íslandi.
Alma D. Möller heilbrigðisráðherra, Silja Bára Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands og Ingibjörg Hjaltadóttir, formaður stjórnar Miðstöðvar í öldrunarfræðum undirrituðu þjónustusamninginn sem tók gildi 1. júní síðastliðinn.