08 júlí 2026

/

Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Raforkukostnaður lækkar í dreifbýli og hjá heimilum á köldum svæðum ​

{image.Description}
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.

Frumvarp umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um breytingar á lögum um jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku var samþykkt á Alþingi í síðasta mánuði og tóku lagabreytingarnar gildi þann 1. júlí. Áhrifin ættu að birtast strax í rafmagnsreikningum sem berast heimilum og fyrirtækjum í upphafi næsta mánaðar.

Nýju lögin fela í sér að jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku milli dreifbýlis og þéttbýlis eykst úr rúmum 60% í tæplega 90%. Þetta er liður í stefnu ríkisstjórnarinnar um að jafna aðstöðu heimila og fyrirtækja óháð búsetu og styrkja stoðir atvinnulífs og búsetu í dreifðum byggðum. Áhrifin munu koma einna sterkast fram í landbúnaði.

Um leið og dreifbýlisframlag hækkar og raforkureikningurinn lækkar hjá heimilum og fyrirtækjum í dreifbýli fela breytingarnar í sér að raforkunotkun vegna hitunar íbúðarhúsnæðis sem uppfyllir skilyrði niðurgreiðslna skv. 4. gr. laga um niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar, nr. 78/2002, verður undanþegin greiðslu jöfnunargjalds. Þetta felur í sér að raforkureikningur allra heimila sem reiða sig á rafhitun eða kyntar veitur mun einnig lækka lítillega.

Lögin fela í sér þá nýbreytni að innleidd er þrepaskipting jöfnunargjalds raforku þannig að notkun undir 1.000 megavattstundum á ári ber hærra gjald en notkun umfram það mark. Með þessu er leitast við að tempra áhrif breytinganna á stærri raforkunotendur sem greiða þéttbýlistaxta og tryggja að kostnaðaraukning verði ekki óhófleg. Er þetta í fyrsta skipti sem slíkri ívilnun er beitt við hækkun jöfnunargjalds.

Fyrir heimili í dreifbýli er áætlað að raforkukostnaður lækki að meðaltali um rúmlega 1.000 krónur á mánuði, en fyrir óniðurgreitt rafhitað húsnæði getur lækkunin numið rúmum 8.000 krónum á mánuði. Ávinningur fyrirtækja verður enn merkjanlegri og þá sér í lagi hjá orkufrekri starfsemi á borð við landbúnað, garðyrkju og fiskvinnslu, þar sem lægri dreifikostnaður getur skipt verulegu máli fyrir rekstrarskilyrði og samkeppnishæfni.

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra: „Þetta er jafnaðarmennska í orkumálum og mikilvægt byggðamál. Fyrir landbúnað og ýmsa atvinnustarfsemi í dreifðum byggðum skiptir þetta gríðarlegu máli. Fyrir t.a.m. meðalstórt kúabú gæti lækkunin á dreifikostnaði raforku sem lagabreytingarnar skila numið rúmlega 40.000 kr. á mánuði, eða um 480.000 kr. á ári. Fyrir mörg bú er það fjárhæð sem skiptir máli á tímum þar sem aðföng, vextir og annar rekstrarkostnaður hafa hækkað mikið. Raforkueftirlitið mun fylgjast grannt með því að jöfnunin skili sér til notenda og við munum halda áfram að þróa jöfnunarkerfið þannig að það skili þeim árangri sem að er stefnt.“