13 júlí 2026
/
Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Drög að þingsályktun um stefnu um uppbyggingu flutningskerfis raforku í Samráðsgátt
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur sett til kynningar í Samráðsgátt drög að þingsályktun um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku í samræmi við 39. gr. a raforkulaga, nr. 65/2003, með síðari breytingum.
Þingsályktunartillögunni er ætlað að leysa af hólmi núgildandi stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku sem samþykkt var með þingsályktun nr. 26/148 á 148. löggjafarþingi með breytingum sem urðu með ályktun nr. 50/194 á 149. löggjafarþingi. Sú stefna hefur að mörgu leyti reynst vel en ýmis atriði þarfnast þó endurskoðunar og breytinga.
Stefnunni er ætlað að vera leiðbeinandi og skilgreina þau markmið sem flutningsfyrirtækinu er ætlað að vinna að, leggja línur um forgangsröðun og til hvaða sjónarmiða eigi að líta þegar fjölþætt markmið stangast á. Stefnan varðar einn af grunninnviðum samfélagsins og hefur þýðingu fyrir afhendingaröryggi raforku, atvinnu- og byggðaþróun, orkuskipti og loftslagsmarkmið stjórnvalda.
Í drögunum er lögð áhersla á að uppbygging flutningskerfisins stuðli að aukinni flutningsgetu milli landshluta, bættri afhendingargetu og auknu afhendingaröryggi á landsvísu, með sérstakri áherslu á Vestfirði og Norðausturland. Töluverð áhersla er lögð á samhæfingu orkuvinnslu, flutnings og raforkunotkunar. Þá eru sett framviðmið um lagningu raflína og tillit til umhverfis- og öryggissjónarmiða. Hnykkt er sérstaklega á því í stefnunni að flutningskerfið skuli byggt upp og rekið af flutningsfyrirtæki í opinberri eigu. Í stefnunni er jafnframt lögð áhersla á að uppbygging flutningskerfis raforku gangi hratt fyrir sig enda er styrking kerfisins forsenda aukinnar orkuöflunar, orkuskipta og verðmætasköpunar um land allt.
Athygli er vakin á því að frestur til að senda umsögn í samráðsgátt er til 19. ágúst nk.
Drög að þingsályktun um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku