15 júlí 2026

/

Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Reglugerðarbreytingar vegna breytinga á fyrirkomulagi heilbrigðiseftirlits í Samráðsgátt

{image.Description}

Alþingi samþykkti nýlega frumvarp Jóhanns Páls Jóhannssonar, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, um einföldun regluverks og aukna skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum (einföldun eftirlits). Með lögunum eru heilbrigðisnefndir lagðar niður, horfið frá hefðbundinni svæðisskiptingu heilbrigðiseftirlits og framkvæmd eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum í meginatriðum færð til Umhverfis- og orkustofnunar.

Í Samráðsgátt stjórnvalda hafa nú verið birt drög að þeim reglugerðarbreytingum sem heyra undir umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið og eru til samræmis umræddum lagabreytingum. Alls er um að ræða breytingar á 57 reglugerðum.

Flestar breytingarnar felast í því að verkefni sem áður voru á hendi heilbrigðisnefnda sveitarfélaga færast til Umhverfis- og orkustofnunar, en í einhverjum tilvikum færast verkefni til sveitarfélaga. Jafnframt er orðalag og tilvísanir í reglugerðum uppfært til samræmis við hið nýja fyrirkomulag.

Gert er ráð fyrir að reglugerðarbreytingarnar taki gildi 1. janúar 2027 samhliða lagabreytingunum.

Í samráðsgátt má finna heildaryfirlit yfir helstu reglugerðarbreytingar ásamt sérstöku skjali fyrir hverja reglugerðarbreytingu.

Óskað er eftir athugasemdum við reglugerðardrögin í Samráðsgátt eigi síðar en 17. ágúst 2026.

Breytingar á reglugerðum vegna einföldunar eftirlits