15 júlí 2026
/
Forsætisráðuneytið
Nýr samráðshópur stjórnvalda og Grindavíkurbæjar
Frá júní 2025 hafa fulltrúar forsætisráðuneytisins, Grindavíkurnefndar og bæjarstjórnar Grindavíkur átt í reglubundnu samtali um framtíðaruppbyggingu Grindavíkur. Nú er unnið að formlegri skipun samráðshóps stjórnvalda og Grindavíkurbæjar. Fyrirkomulagið byggir á tillögu sem Grindavíkurnefnd setti fram í skýrslu sinni um endurreisn Grindavíkur, en nefndin lauk störfum lögum samkvæmt 1. júní sl.
Í samráðshópnum munu eiga sæti fulltrúar forsætisráðuneytis, fjármála- og efnahagsráðuneytis, dómsmálaráðuneytis, innviðaráðuneytis og Grindavíkurbæjar. Fulltrúar annarra ráðuneyta og stofnana verða boðaðir á fundi eftir þörfum.
Samráðshópurinn verður ekki ákvörðunartökuaðili en mun gegna mikilvægu hlutverki við að:
- samræma aðkomu ríkis og Grindavíkurbæjar að endurreisn Grindavíkur,
- fylgjast með framvindu helstu verkefna og halda utan um stöðu mála,
- viðhafa reglulegt samráð við stofnanir og vísindafólk,
- vera vettvangur upplýsingamiðlunar og samskipta við íbúa, stofnanir og vísindasamfélag,
- efla gagnsæi, samfellu og samhæfingu aðgerða.
Samráðshópurinn mun geta komið á fót vinnuhópum, sem vinni sameiginlega að verkefnum sem ákveðið er að ráðast í. Slíkir hópar geta verið samsettir af fulltrúum ráðuneyta, bæjarstjórnar, stofnana eða einkaaðila.
Gert er ráð fyrir að samráðshópurinn verði að störfum á meðan óvissustig almannavarna vegna jarðhræringa og eldvirkni á Reykjanesskaga er í gildi og þess er þörf vegna endurreisnar Grindavíkur.