16 júlí 2026
/
Heilbrigðisráðuneytið
Handbækur og stefnur Stafrænnar heilsu
Stafræn heilsa sem er miðstöð þróunar og nýsköpunar fyrir heilbrigðisþjónustu hefur birt uppfærðar handbækur og stefnur á verkefnasviði sínu. Þar á meðal er Gagnahandbók – leiðarvísir fyrir gagnaskipulag stafrænna lausna fyrir íslenskar heilbrigðisstofnanir, Hönnunarhandbók, Rekstrarhandbók, Þróunarhandbók o.fl.
Eftir því sem stafræn heilbrigðisþjónusta vex er mikilvægt að til sé sameiginlegur grundvöllur og skilningur svo allir aðilar vinni eftir sömu kröfum. Þessar stefnur og handbækur endurspegla þá reynslu sem til hefur orðið og telja fram þær kröfur sem gerðar eru í dag af hendi Stafrænnar heilsu.
Stefnur, handbækur og önnur skjöl Stafrænnar heilsu eru á vefsvæði hennar;