17 júlí 2026

/

Dómsmálaráðuneytið

Dómnefnd birtir umsögn um dómaraembætti við Héraðsdóm Norðurlands eystra

{image.Description}
Stjórnarráðið

Dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara hefur skilað umsögn um umsækjendur um dómaraembætti með fyrsta starfsvettvang við Héraðsdóm Norðurlands eystra.

Embættið var auglýst laust til umsóknar 8. maí og var umsóknarfrestur til 26. maí.  Umsögnin er birt hér að neðan.

Niðurstaða nefndarinnar er að Margrét Helga Kristínar Stefánsdóttir sé hæfust umsækjenda til að hljóta skipun í embættið.

Dómnefndina skipuðu Ása Ólafsdóttir, formaður, Helga Melkorka Óttarsdóttir, Jóhannes Sigurðsson, Reimar Pétursson og Þorgeir Örlygsson. 

Umsögnina má lesa hér.