20 júlí 2026
/
Utanríkisráðuneytið
Utanríkisráðherra Frakklands sótti Ísland heim
Tvíhliða samband Íslands og Frakklands, innrásarstríð Rússlands í Úkraínu, staða mála í Mið-Austurlöndum, Evrópumál og norðurslóðir voru efst á baugi á fundi Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og Jean-Noël Barrot, utanríkisráðherra Frakklands, sem fram fór í utanríkisráðuneytinu í dag.
Ráðherrarnir skrifuðu undir sameiginlega viljayfirlýsingu um aukið tvíhliða samstarf Íslands og Frakklands (á íslensku og á frönsku). Þar eru sett fram sameiginleg markmið um dýpra samstarf á fjölmörgum sviðum, þar á meðal á sviði alþjóðastjórnmála, öryggis- og varnarmála, viðskipta og fjárfestinga, líffræðilegrar fjölbreytni, loftslagsaðgerða og kolefnislosunar, nýsköpunar, menntunar og vísinda, sem og eflingar mannréttinda og lýðræðis.
„Traust samskipti ríkjanna byggja á sameiginlegum lýðræðislegum gildum og aldalangri vináttu og dagskrá Barrot hérlendis sýnir metnað ríkjanna til að dýpka samstarfið enn frekar, “ segir Þorgerður Katrín. „Frakkland er mikilvægur bandamaður Íslands innan Atlantshafsbandalagsins og Evrópska efnahagssvæðisins sem og þegar kemur að stuðningi við Úkraínu, alþjóðalög, mannréttindi og loftslagsaðgerðir. Við viljum líka efla viðskipti og fjárfestingar milli landanna en franskir fjárfestar hafa verið umsvifamiklir hér á landi á undanförnum árum. Ég er sannfærð um að þessi heimsókn kemur til með styrkja enn frekar hið öfluga samstarf landanna á komandi árum.“
Heimsókn Jean-Noël Barrot utanríkisráðherra Frakklands hingað til lands markar tímamót, enda er þetta fyrsta vinnuheimsókn fransks utanríkisráðherra til Íslands frá árinu 2000. Jafnframt er það í fyrsta sinn sem viðskiptasamtökin MEDEF taka þátt í slíkri heimsókn, sem undirstrikar aukna áherslu á efnahags- og viðskiptasamstarf ríkjanna.
Meðan á dvöl Barrot stóð á Íslandi kynnti hann sér m.a. starfsemina sem fer fram á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli, heimsótti Hellisheiðarvirkjun og fékk leiðsögn um þjóðgarðinn á Þingvöllum.