22 júlí 2026
/
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Ársskýrsla ríkisfyrirtækja fyrir árið 2025
Ársskýrsla ríkisfyrirtækja fyrir árið 2025 hefur verið birt. Í skýrslunni er að finna upplýsingar um starfsemi fyrirtækjanna, árangur og afkomu sem og upplýsingar um stjórnir fyrirtækjanna.
Að auki er yfirlit yfir viðmið fyrirtækja um arðsemi, fjármagnsskipan og arðgreiðslur.
Íslenska ríkið átti alfarið eða veigamikinn eignarhlut í 45 félögum árið 2025, með ólíka starfsemi og markmið.
Í ársskýrslunni má nálgast ýmislegt efni á gagnvirkan hátt.