22 júlí 2026

/

Heilbrigðisráðuneytið

Staða aðgerða til að sporna við sýklalyfjaónæmi

{image.Description}

Aðerðaáætlun til ársins 2029 gegn útbreiðslu sýklalyfjaónæmis tók gildi árið 2025. Starfshópur sem metur og hefur eftirlit með framkvæmd áætlunarinnar hefur birt fyrstu framvinduskýrslu sína en slíkt mat skal fara fram árlega.

Sýklalyfjaónæmi er ein stærsta heilbrigðisógn sem heimurinn stendur frammi fyrir í dag og fer ógnin vaxandi með hverju ári. Þó sýklalyfjaónæmi sé ekki eins stórt vandamál hér á landi og í mörgum öðrum löndum þá virða sýklalyfjaónæmar bakteríur engin landamæri og hefur vandamálið aukist hér sem annars staðar á síðustu árum. Fyrirsjáanlegt er að aukið sýklalyfja- ónæmi mun valda erfiðleikum við meðhöndlun ýmissa sjúkdóma og sýkinga, auka dánartíðni og auka kostnað í heilbrigðiskerfinu.

Aðgerðaáætlun íslenskra stjórnvalda gegn sýklalyfjaónæmi nær yfir fimm ára tímabil, 2025–2029 og inniheldur sex aðgerðir sem fela í sér 24 markmið og 75 verkefni sem nauðsynlegt er að hrinda í framkvæmd. Verkefnunum er forgangsraðað og kostnaður af framkvæmd þeirra metinn.

Ársskýrslan um framkvæmd aðgerðaáætlunarinnar byggir á upplýsingum og gögnum frá ábyrgðaraðilum verkefna samkvæmt aðgerðaáætluninni, ásamt öðrum fyrirliggjandi upplýsingum um þróun sýklalyfjanotkunar, sýklalyfjaónæmis og tengdra lýðheilsuvísa. Skýrslunni er ætlað að styðja stjórnvöld og ábyrgðaraðila við áframhaldandi eftirfylgni, mat og ákvarðanatöku um framkvæmd aðgerða gegn útbreiðslu sýklalyfjaónæmis á komandi árum.