23 júlí 2026

/

Heilbrigðisráðuneytið

Heilbrigðisþing 2026 haldið 26. nóvember – takið daginn frá

{image.Description}
Alma D. Möller heilbrigðisráðherra

Alma D. Möller heilbrigðisráðherra boðar til árlegs heilbrigðisþings 26. nóvember næstkomandi. Þingið verður að þessu sinni helgað áhrifaþáttum geðheilsu barna, lágþröskuldaþjónustu og nýjungum í geðheilbrigðisþjónustu við börn.

„Ég hef frá fyrsta degi sem heilbrigðisráðherra lagt áherslu á aukna þjónustu við börn. Með virkum forvörnum og snemmtækri íhlutun er hægt að draga úr hættu á því að börn þrói með sér geðrænan vanda og stuðla að heilbrigðum þroska þeirra á mikilvægasta og viðkvæmasta æviskeiðinu“ segir Alma D. Möller heilbrigðisráðherra.

Heilbrigðisþingið verður haldið á hótel Hilton Reykjavík, Suðurlandsbraut 2.

Dagskrá þingsins og skráning þátttöku verður auglýst síðar.