24 júlí 2026

/

Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Frumvarpsdrög um innleiðingu á CBAM-reglugerð ESB sett í Samráðsgátt

{image.Description}

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur birt í Samráðsgátt stjórnvalda frumvarp til innleiðingar á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/956 frá 10. maí 2023 um að koma á fót aðlögunarkerfi við landamæri vegna kolefnis, eins og henni var breytt með reglugerð (ESB) 2025/2083, svokölluð CBAM-reglugerð.

Með reglugerðinni er sett á fót aðlögunarkerfi við landamæri vegna kolefnis (CBAM-kerfi) þar sem gjöld eru lögð á tilteknar vörur sem fluttar eru inn frá ríkjum utan EES-svæðisins.

CBAM-kerfinu er ætlað að heimfæra gjöld á losun gróðurhúsalofttegunda, sambærileg þeim sem tíðkast undir ETS-kerfinu, á vörur sem framleiddar eru utan EES-svæðisins. Þannig er kerfinu ætlað að gæta að samkeppnishæfni iðnaðar í Evrópu þegar endurgjaldslausum losunarheimildum fækkar innan ETS-kerfisins og á sama tíma er dregið úr hættu á kolefnisleka. Kolefnisleki á sér stað þegar losunarfrek starfsemi færist frá ríkjum sem búa að metnaðarfullu loftslagsregluverki, líkt og í gildi er á EES-svæðinu, til annarra ríkja þar sem lögbundinn kostnaður vegna losunar gróðurhúsalofttegunda er minni. Tilgangur CBAM-kerfisins er því að jafna stöðu framleiðenda CBAM-vara innan og utan EES-svæðisins.

Fyrirtæki sem falla undir kerfið eru þau sem flytja inn 50 tonn eða meira af CBAM-vörum árlega. Önnur fyrirtæki eru undanskilin til að leggja ekki óþarfa byrði á smærri og meðalstór fyrirtæki. Innan þessara 50 tonna getur verið ein eða fleiri tollskyld vara sem fellur undir CBAM.

Um er að ræða eftirfarandi vörur:

i) áburður,

ii) ál og álvörur,

iii) járn og stál,

iv) sement,

v) vetni og

vi) rafmagn.

Innflutningur á vetni og rafmagni er þó alltaf háður kaupum á CBAM-vottorðum óháð fyrrnefndum 50 tonna þröskuldi.

Ferlið fer fram með eftirfarandi hætti:

  • Innflytjandi kaupir svokölluð CBAM-vottorð vegna innflutnings fyrrgreindra CBAM-vara og mun verð þeirra endurspegla verð ETS-losunarheimilda.
  • Fjöldi CBAM-vottorða sem kaupa þarf er háður losun við framleiðslu varanna, að frádregnu mögulegu kolefnisgjaldi sem þegar hefur verið greitt í upprunalandi vörunnar.
  • Innflytjandi CBAM-vara þarf að fá samþykki sem CBAM-skýrslugjafi til þess að mega flytja vörurnar inn.
  • CBAM-skýrslugjafi safnar upplýsingum um losun varanna sem hann flytur inn frá löndum utan ESB og gefur út og skráir í gagnagrunn svokallaða CBAM-yfirlýsingu um innflutninginn og losun hans.
  • Innflytjandi jafnar svo losunina með því að kaupa og skila inn CBAM-vottorðum fyrir losuninni.

Athygli er vakin á að umsagnarfrestur vegna frumvarpsins í Samráðsgátt er til og með 17. ágúst 2026.

Aðlögunarkerfi við landamæri vegna kolefnis (CBAM)