28 júlí 2026

/

Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Úthlutun styrkja: Strandhreinsun Íslands 2026

{image.Description}

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur úthlutað 18 styrkjum til verkefna sem felast í hreinsun á strandlengju Íslands á grundvelli tillögu Umhverfis- og orkustofnunar. Alls bárust 24 umsóknir um styrki. Heildarstyrkupphæð er 29.854.000 kr..

Styrkirnir eru veittir á grundvelli aðgerðar 17 í aðgerðaráætlun umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins í plastmálefnum Úr viðjum plastsins, sem hófst árið 2021 og stóð til 2025. Verkefnið var framlengt um þrjú ár og verður í gildi til ársins 2028.

Helstu markmið með veitingu styrkjanna er að strandlengja Íslands verði hreinsuð með skipulegum hætti, hreinsuðum ströndum verði haldið við, að efla vitundarvakningu hjá almenningi um mikilvægi strandhreinsana og virkja áhugasama aðila til þátttöku í átaki um hreinsun strandlengjunnar.

Eftirtaldir aðilar hlutu styrk:


 

Nánari upplýsingar um verkefnið