04 ágúst 2026
/
Dómsmálaráðuneytið
Ráðherra sat fjarfund um stöðuna í Ceuta
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, sat í morgun fjarfund dóms- og innanríkisráðherra Evrópusambandsins og Schengen-ríkja. Boðað var til fundarins vegna stöðunnar sem skapaðist í spænsku sjálfsstjórnarborginni Ceuta fyrir helgi þegar þangað streymdu tugþúsundir frá nágrannaríkinu Marokkó.
Á fundinum lýstu aðildarríki ESB og Schengen-ríkin yfir fullri samstöðu með Spáni og þökkuðu þarlendum stjórnvöldum fyrir skjót og skilvirk viðbrögð. Jafnframt vottuðu ráðherrarnir samúð sína með þeim sem létu lífið við að reyna að komast sjóleiðis yfir landamærin.
Samkvæmt þeim upplýsingum sem fram komu á fundinum hefur meirihluta þeirra sem komust til Ceuta verið snúið aftur til Marokkó. Ekkert bendir til þess að fólki hafi tekist að komast yfir á meginland Spánar eða til annarra aðildarríkja og þannig inn á Schengen-svæðið.
Ráðherrarnir lögðu á fundinum áherslu á mikilvægi þess að berjast gegn brotahópum sem stunda skipulagt smygl á fólki, styrkja landamæri og efla samstarf við þriðju ríki. Einnig var bent á nauðsyn þess að styrkja og samhæfa upplýsingagjöf til að gera aðildarríkjum betur kleift að verjast utanaðkomandi upplýsingaóreiðu.
„Af atburðum síðustu daga má draga þann lærdóm að skýr skilaboð stjórnvalda skipta grundvallarmáli og að upplýsingaóreiða getur haft alvarlegar afleiðingar. Það er skelfilegt að tugir hafi látið lífið og undirstrikar að þeir sem hagnast á því að smygla fólki í viðkvæmri stöðu yfir landamæri bera enga virðingu fyrir mannslífum. Samstaða Evrópuríkjanna skiptir höfuðmáli í því að vinna saman gegn slíkri brotastarfsemi,“ segir dómsmálaráðherra.