05 ágúst 2026
/
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Ragnar Þór heimsótti Vestur-Íslendinga í Manitoba og Norður-Dakóta
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, heimsótti Manitoba í Kanada og Norður-Dakóta í Bandaríkjunum dagana 30. júlí til 4. ágúst. Tilefni heimsóknarinnar var þátttaka í hátíðarhöldum Vestur-Íslendinga, The Deuce of August í Mountain og á Íslendingadeginum í Gimli.
Í Winnipeg í Manitoba heimsótti ráðherra þinghúsið og átti þar fundi með Nellie Kennedy, ráðherra íþrótta-, menningar-, og ferðamála, og Bernadette Smith, ráðherra húsnæðis- og félagsmála í Manitoba. Á fundinum var meðal annars rætt um samskipti Íslands og Manitoba, Íslendingadaginn og stefnur stjórnvalda á sviði félags- og húsnæðismála.
Í Mountain tók hann þátt í hátíðarhöldunum The Deuce of August, þar sem tekin var skóflustunga að Rootshús, verðandi safni um íslenska sögu og íslenskar hefðir í Norður-Dakóta, heimsótti sögulega staði tengda landnámi Íslendinga og flutti ávarp við hátíðardagskrá í bænum.
„Jafnvel þótt úthaf skilji okkur að þá eru tengslin milli Íslands og vesturheims sterk. Þið eruð ekki aðeins afkomendur Íslendinga, þið eruð hluti af íslensku þjóðinni“ sagði Ragnar Þór í ræðu sinni í Mountain.
Ragnar Þór ásamt sendinefnd Íslands eftir fund hans með Nellie Kennedy (þriðja frá hægri) og Bernadette Smith (önnur frá hægri), ráðherrum úr fylkisstjórn Manitóba
Ráðherra heimsótti jafnframt Háskólann í Manitoba og skoðaði hið íslenska bóka- og handritasafn háskólans.
Í Gimli tók ráðherra þátt í dagskrá Íslendingadagsins, meðal annars skrúðgöngu og hefðbundinni hátíðardagskrá í Gimli Park, þar sem hann flutti Minni Kanada. Þá heimsótti hann söfn, minnisvarða og aðra sögulega staði sem varðveita sögu og menningararf Vestur-Íslendinga.
„Menningartengsl Íslands og Nýja Íslands í Kanada hafa ekki varðveist af sjálfu sér. Þau hafa varðveist vegna óþreytandi elju þeirra fjölmörgu Vestur-Íslendinga og Íslendinga sem hafa kynslóð eftir kynslóð lagt tíma, krafta og alúð í að rækta þau og færa áfram til nýrra kynslóða,“ sagði Ragnar í ræðu sinni á Íslendingadeginum í Gimli, þann 3. ágúst.
Ragnar Þór flytur ávarp (Toast to Canada) við hátíðardagskrá Íslendingadagsins í Gimli
Ragnar Þór heiðrar Curtis Olafson (president of Icelandic Communities Association) við dagskrá The Deuce of August í Mountain í N-Dakóta