06 ágúst 2026

/

Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Opnað fyrir umsóknir til listamannalauna og í Sviðslistasjóð

{image.Description}

Opnað hefur verið fyrir umsóknir til listamannalauna fyrir árið 2027. Tilgangur listamannalauna er að efla listsköpun í landinu. Opið er fyrir umsóknir til klukkan 15:00, 1. október 2026.

Sviðslistaráð auglýsir jafnframt eftir styrkumsóknum atvinnusviðslistahópa í Sviðslistasjóð. Umsóknarfrestur er sá sami eða til klukkan 15, 1. október 2026.

Listamannalaun

Samkvæmt lögum um listamannalaun eru til úthlutunar 2370 mánaðarlaun, 197,5 árslaun:

  • 100 mánuðir úr launasjóði hönnuða og arkitekta, 8,3 árslaun
  • 540 mánaðarlaun úr launasjóði myndlistarmanna, 45 árslaun
  • 640 mánaðarlaun úr launasjóði rithöfunda, 53,3 árslaun 
  • 240 mánaðarlaun úr launasjóði sviðslistafólks, 20 árslaun
  • 230 mánaðarlaun úr launasjóði tónlistarflytjenda, 19,2 árslaun
  • 240 mánaðarlaun úr launasjóður tónskálda, 20 árslaun
  • 100 mánaðarlaun úr launasjóði kvikmyndahöfunda, 8,3 árslaun
  • 140 mánaðarlaun úr Vegsemd, 11,7 árslaun

Nánari upplýsingar má nálgast á vef Rannís

Sviðslistasjóður

Hægt er að sækja um í Launasjóð sviðslistafólks vegna launakostnaðar verkefnis leikárið 2027-2028. Umsótt listamannalaun eru hluti af umsóttri upphæð í Sviðslistasjóð en ekki viðbót. Stuðningur vegna launa getur komið úr Sviðslistasjóði og/eða launasjóði.

Tímalengd verkefna getur verið allt að 30 mánuðir og miðast við leikárið 2027-2028 og/eða 2028-2029.

Nánari upplýsingar má nálgast á vef Rannís