06 ágúst 2026
/
Atvinnuvegaráðuneytið
Þrettán umsækjendur um embætti forstjóra Stofnunar atvinnuveganna
Þrettán umsækjendur eru um embætti forstjóra Stofnunar atvinnuveganna. Embættið var auglýst laust til umsóknar 7. júlí sl. og rann umsóknarfrestur út 4. ágúst.
Umsækjendur um embætti forstjóra Stofnunar atvinnuveganna í stafrófsröð:
- Auður Ýr Sveinsdóttir, ráðgjafi
- Ásmundur E. Þorkelsson, framkvæmdastjóri
- Egill Þorri Steingrímsson, sviðstjóri
- Gísli Gíslason, ráðgjafi
- Gísli Rafn Ólafsson, framkvæmdastjóri
- Halla María Sveinbjörnsdóttir, lögfræðingur
- Hans Guttormur Þormar, framkvæmda- og verkefnastjóri
- Hrönn Jörundsdóttir, forstjóri
- Jórunn Ósk Frímannsdóttir Jensen, hjúkrunarfræðingur
- Karl Steinar Óskarsson, deildarstjóri
- Kjartan Örn Sigurðsson, fv. forstjóri
- Magnús Kristjánsson, fv. forstjóri
- Þorgeir Pálsson, stjórnunarráðgjafi og fv. oddviti og sveitarstjóri
Atvinnuvegaráðuneytið felur nefnd að fara yfir þær umsóknir sem bárust. Nefndin skilar atvinnuvegaráðherra rökstuddu áliti á hæfni umsækjenda sem skipar að því loknu í embættið.