07 ágúst 2026

/

Dómsmálaráðuneytið

Margrét Helga skipuð í embætti dómara við Héraðsdóm Norðurlands eystra

{image.Description}
Stjórnarráðið

Dómsmálaráðherra hefur skipað Margréti Helgu Kristínar Stefánsdóttur í embætti dómara með fyrsta starfsvettvang við Héraðsdóm Norðurlands eystra frá 1. október næstkomandi.

Margrét Helga lauk BA-prófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2010 og meistaraprófi frá sama háskóla í febrúar 2013. Hún öðlaðist réttindi sem héraðsdómslögmaður sama ár. Hún starfaði á lögmannsstofu að loknu lagaprófi til ársins 2016 þegar hún varð aðstoðarmaður dómara við Héraðsdóm Reykjaness. Gegndi hún því starfi í um tvö ár. Hún vann í framhaldinu sem aðstoðarmaður dómara við Landsrétt um tveggja ára skeið og síðar aðstoðarmaður dómara við Hæstarétt.

Margrét Helga hefur tvívegis verið sett í embætti héraðsdómara. Annars vegar við Héraðsdóm Vestfjarða í tvo og hálfan mánuð á árinu 2021 þar sem hún jafnframt gegndi störfum dómstjóra og hins vegar við Héraðsdóm Reykjaness í þrjá og hálfan mánuð 2025.

Margrét Helga var verkefnastjóri stafrænnar umbreytingar hjá dómstólasýslunni á árunum 2021 til 2023 og sjálfstætt starfandi lögmaður og verkefnastjóri hjá lögmannsstofu á árunum 2023-2025. Í janúar 2026 hóf hún störf sem lögfræðingur hjá umboðsmanni Alþingis.

Af öðrum störfum má nefna að Margrét Helga hefur verið ritari kærunefndar útboðsmála og setið í fjölmiðlanefnd, ásamt því að sinna stundakennslu við lagadeild Háskóla Íslands.