07 ágúst 2026
/
Mennta- og barnamálaráðuneytið
Tölustafir innleiddir í stað bókstafa
Mennta- og barnamálaráðuneytið hrindir í framkvæmd breytingum á námsmati í grunnskólum með það að markmiði að gera einkunnagjöf skýrari, samræmdari og auðskiljanlegri fyrir nemendur, foreldra og skólasamfélagið allt. Áformin fela í sér að einkunnir verði birtar í tölum í stað bókstafa, en samkvæmt gildandi aðalnámskrá byggir námsmat í grunnskóla á bókstafakvarða sem tengdur er hæfni- og matsviðmiðum við lok 4., 7. og 10. bekkjar.
Breytingarnar verða innleiddar í tveimur áföngum til að tryggja markvissan undirbúning, skýra tengingu við aðalnámskrá og nauðsynlegan stuðning við skóla. Fyrsti áfangi tekur formlega gildi vorið 2027 og nær til lokamats í 10. bekk, en undirbúningur hefjist haustið 2026. Þá verða einkunnir við lok grunnskóla gefnar í heilum tölum á bilinu 1–10. Samhliða verði unnið að því að skýra vægi helstu flokka námsgreina í samræmi við aðalnámskrá.
Sem dæmi um drög að slíkri nálgun úr íslensku:
|
Íslenska |
Talað mál… |
Lestur og lesskilningur |
Bókmenntir |
Ritun |
Mál og málnotkun |
Loka-einkunn |
|
10. bekkur |
20% |
15% |
25% |
30% |
10% |
100% |
Markmiðið er að tryggja að lokaeinkunn gefi skýrari og gagnsærri mynd af stöðu nemenda og að námsmat verði sambærilegra milli skóla.
Ráðuneytið leggur áfram áherslu á fjölbreytt námsmat og að tölukvarði komi ekki í stað faglegs mats kennara á hæfni, framförum og stöðu nemenda. Skólar verða jafnframt hvattir til að nýta undirbúningstímann vel og gefa öðrum árgöngum svigrúm til að prófa sig áfram með tölukvarða áður en breytingarnar taka gildi að fullu. Með því verði byggð upp reynsla innan skólanna, stutt við faglega umræðu og dregið úr óvissu við innleiðingu.
Annar áfangi taki formlega gildi vorið 2028 og nái til lokamats í 4. og 7. bekk. Í þeim áfanga verði ráðist í frekari endurskoðun greinasviða aðalnámskrár með sérstaka áherslu á stærðfræði, náttúrufræði, íslensku og íslensku sem annað tungumál. Þar verði lögð áhersla á skýrari miðlæg viðmið um þá þekkingu, leikni og hæfni sem nemendur eiga að hafa náð á tilteknum skólastigum.
Gerðar verða breytingar á aðalnámskrá þessa efnis sem munu taka gildi í vetur.
Ráðuneytið leggur áherslu á að breytingarnar verði innleiddar af festu, en með skýrum leiðbeiningum, stuðningi við skóla og virku samtali við skólasamfélagið. Miðstöð menntunar og skólaþjónustu mun styðja við innleiðingu breytinganna. Samtal hefur þegar átt sér stað við helstu hagaðila, þar á meðal fulltrúa Sambands íslenskra sveitarfélaga, formenn Kennarasambands Íslands, Skólameistarafélags Íslands, fulltrúa Heimilis og skóla og háskólasamfélagið. Markmiðið er að tryggja að breytingarnar verði faglegar, framkvæmanlegar og í þágu nemenda.